samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Samgönguáætlun er eitt mikilvægasta stjórntæki Alþingis þegar kemur að uppbyggingu landsins. Hún er ekki aðeins upptalning á vegum, brúm, höfnum, flugvöllum og jarðgöngum, hún er stefnumótun um framtíð samfélagsins, um það hvernig við ætlum að tengja byggðir saman, efla atvinnulíf, auka öryggi og skapa forsendur fyrir efnahagslegri velmegun um allt land.
Virðulegur forseti. Við höfum séð það víða um land að bættar samgöngur breyta forsendum samfélaga. Þegar leiðir styttast og öryggi eykst verða ný tækifæri til. Fyrirtæki geta stækkað markaði sína. Ferðaþjónustan nær til fleiri svæða og fólk sér fleiri möguleika til að búa áfram í sinni heimabyggð. Þetta er byggðastefna í framkvæmd, ekki í orðum heldur í raunverulegum innviðaframkvæmdum. En til þess að svo verði þarf samgönguáætlun að vera raunhæf og fjármögnuð. Hún má ekki vera óskalisti þar sem verkefni eru sett inn ár eftir ár án þess að framkvæmdir hefjist. Það þarf að liggja skýrt fyrir hvaða verkefni eiga að fara af stað, hvenær þau eiga að hefjast og hvernig þau verða fjármögnuð. Alþingi verður að standa við þau fyrirheit sem sett eru fram gagnvart landsmönnum. Við þurfum að horfa til heildarinnar. Vegakerfið þarf að vera öruggt og þola aukna umferð, jarðgöng þurfa að rjúfa einangrun, styrkja atvinnusvæði og bæta umferðaröryggi. Hafnir landsins þurfa að geta þjónað sjávarútvegi, flutningum, ferðaþjónustu og nýjum atvinnutækifærum. Flugvellir landsins þurfa að vera byggðir upp sem hluti af öryggiskerfi þjóðarinnar.
Frú forseti. Flugvallakerfi er sérstaklega mikilvægt í landi eins og Íslandi. Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur og Keflavíkurflugvöllur mynda saman mikilvægt kerfi fyrir millilandaflugið. Sjúkraflugið er stórt og mikilvægt hér á landi, almannavarnir og varaflugvellir. Það kerfi þarf að vera fjármagnað með skýrum hætti og uppbygging þess má ekki vera háð óvissu frá ári til árs. Sjúkraflug og varaflugvellir eru ekki aukaatriði. Þau varða líf og heilsu fólks. Þau varða öryggi landsins og jafnræði landsmanna til þjónustu. Þess vegna þarf að tryggja að fjármunir sem ætlaðir eru til uppbyggingar flugvallakerfisins skili sér í raunverulegum framkvæmdum. Samgöngur eru ekki sérhagsmunamál einstakra landshluta. Þær eru þjóðhagslegt hagsmunamál. Þegar við byggjum upp samgöngur á landsbyggðinni erum við að styrkja útflutningsgreinar, ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu, nýsköpun og verðmætasköpun fyrir þjóðina alla.
Frú forseti. Ég reikna með að þetta sé síðasta ræðan hjá mér um þessa samgönguáætlun 2026–2040 og því vildi ég aðeins koma inn á breytingartillöguna sem ég er með við málið, þingsályktunartillögu á þskj. 1287, sem snýr annars vegar að aðflugsljósum inn á norðurenda flugbrautar á Akureyrarflugvelli og hins vegar að flýta framkvæmdum við Egilsstaðaflugvöll. Þetta eru verkefni sem eru fullfjármögnuð í gegnum varaflugvallargjaldið og mikilvægt að lögin um varaflugvallargjaldið sem voru samþykkt hér fyrir þremur árum, í júní 2023, séu virt og fjármagnið sem er gjaldtakan tengd lögunum fari til þess sem gjaldtakan var hugsuð fyrir og mikill vilji var hér af hálfu þingheims að yrði gert. Það á að vera öllum skýrt. Ég vildi koma inn á þetta vegna þess að ég verð erlendis í næstu viku á vegum þingsins og það stefnir í að ég verði ekki við atkvæðagreiðsluna.
Síðan vildi ég rétt að lokum koma inn á innviðafélagið og mikilvægi þeirrar umræðu sem við höfum tekið hér fyrir töluvert mikið í umræðu um samgönguáætlun. Það er leiðinlegt að missa af þeirri umræðu. Það er mikilvæg umræða og leiðinlegt sem fjárlaganefndarmaður að missa af henni en félagið hefur verið rætt töluvert í tengslum við samgönguáætlun. Ég vil bara segja með það mál að það hefði verið miklu betra að það hefði verið afgreitt fyrir einhverjum vikum eða jafnvel mánuðum síðan í samhengi við fjármálaáætlun og í samhengi við vinnu við samgönguáætlun sem við erum að ræða hér. Það er ekki nægilega skýrt hvernig innviðafélagið mun virka og hvernig sú lagaumgjörð sem þar er fyrir komið, hvernig það muni allt saman virka.
Virðulegur forseti. Ég vil segja þetta að lokum: Sterkir grunninnviðir eru forsenda öflugs atvinnulífs. Öflugt atvinnulíf er forsenda góðra lífskjara. Með metnaðarfullri, skýrri og fjármagnaðri samgönguáætlun leggjum við grunn að öruggara samfélagi, sterkari byggðum og meiri efnahagslegri velmegun fyrir Ísland allt. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.