157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[11:52]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Þessi samgönguáætlun bætir raunverulega ekki neinu við það sem áður var verið að gera. Ég lýsi vonbrigðum og hef gert það áður, sérstaklega yfir því hvað jarðgangaáætlunin er rýr í roðinu og öllu veitt á seinni tíma ríkisstjórnir. Ég lýsi vonbrigðum yfir því að Fjarðarheiðargöng séu sett aftar í röðina og Fljótagöng tekin fram yfir. Ég tel þingið skulda Seyðfirðingum einhverjar lausnir fyrst þessi jarðgöng eru komin þarna mjög aftarlega í tíma. Ekki er hægt að líta fram hjá því að á Seyðisfirði er ýmis vá fyrir hendi eins og aurflóð og snjóflóð. Þessi vegur yfir Fjarðarheiðina lokast mjög oft á veturna og er örugglega ekki opinn nema örfáar vikur jafnvel á ári, svo að öruggt sé, þannig að við skuldum Seyðfirðingum raunverulega svör, frú forseti, við því hvaða lausnir eru í boði fyrir þetta byggðarlag. Ef menn ætla ekki að fara í Fjarðarheiðargöng, eða fresta þeim svona lengi, hverjar aðrar lausnir eru fyrir hendi? Á að taka þessi göng til Mjóafjarðar og Norðfjarðar? Nei, það er ekki heldur í boði. Við skuldum Seyðfirðingum í raun og veru svör við því hvaða lausnir eru í boði vegna þess að þetta byggðarlag, sem telur milli 500 og 800 manns og hefur þessa ferju, þarf auðvitað einhver svör frá samgöngunefnd og þinginu um það hvaða lausnir eru í boði fyrir þetta byggðarlag, þannig að það sé nefnt hér í þessari ræðu.

Að öðru leyti vil ég nefna Reynisfjall, göng í gegnum Reynisfjall. Það er mjög mikilvægt, frú forseti, að vegurinn um Gatnabrún komist sem fyrst á dagskrá. Þar skapast oft mjög hættulegar aðstæður á vetrum og hafa orðið þar tíð slys og hrun niður á veg næstum á hverjum einasta vetri þannig að það er mjög brýnt að það sé ráðist í þessa framkvæmd. Þetta er ekki nema, held ég, rúmur kílómetri í göngum og ríkisstjórnin hefur ekki afl til þess að fara í slíka framkvæmd til að gera akstur þarna öruggari. Ferðamenn fara um Suðurlandsveg í gegnum Víkurþorpið. Þetta er eiginlega einn fjölfarnasti vegur landsins þar sem fólk er að fara austur í Jökulsárlón og Hornafjörð og það er mjög brýnt að fara í göng í gegnum Reynisfjall. En það er ekkert á dagskrá hjá þessari samgöngunefnd. Það er öllu frestað.

Það er einkennilegt, frú forseti, að þessi ríkisstjórn er búin að skattleggja sérstaklega íbúa landsbyggðarinnar með kílómetragjöldum, með vörugjöldum og með veiðigjöldum, talandi um það þegar talað var fyrir þessari skattlagningu hér á þinginu, að hún væri nauðsynleg til að efla innviði. Menn eru ekki að sjá árangur af því, frú forseti. Menn eru ekki að sjá árangur af því og hvert fara þessir aurar? Þeir fara í að belgja út báknið. 143 milljörðum var aukið við fjárlög síðasta árs, 143 milljörðum. Innviði er ekki að sjá í þessari samgönguáætlun. Engin jarðgöng, þau eru bara á dagskrá síðar fyrir næstu ríkisstjórn.

Ég ætlaði einnig að nefna tvöföldun Reykjanesbrautar upp að flugstöð. Hún er ekki á dagskrá fyrr en 2030, 2031, ekki í tíð þessarar ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjórn leggur bara á skatta. Það er það sem hún kann. Þessi vinstri ríkisstjórn leggur bara á skatta en eflir ekki innviði. Það er verkefni næstu ríkisstjórnar.