157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[11:57]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa yfirferð. Ég bind miklar vonir við að það skapist viðbótarsvigrúm svo hægt sé að fara í þá breytingartillögu sem hefur verið birt sömuleiðis. Mér finnst það í raun og veru vera forsenda þess að við sjáum ákveðnar aðgerðir í Suðurkjördæmi. Það er af nægu að taka þar eins og hv. þingmaður kemur inn á og mig langar til að spyrja hv. þingmann sérstaklega um samspil Reykjanesbrautarinnar — sem ég er sammála að er allt of seint, við erum að tala um næsta áfanga sem þýðir að framkvæmdin er ekki fjármögnuð — við mögulegt innviðafélag.

Hér langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann geti tekið undir með mér að Suðurnesin, sem treysta mjög svo á að sækja þjónustu til Reykjavíkur, hafi orðið eftir á í uppbyggingu ýmiss konar vegna þess að þau eru í raun og veru of nálægt höfuðborgarsvæðinu. Reykjanesbrautin er því alger lífæð varðandi ýmsa þjónustu, heilbrigðisþjónustu og menntun, þegar maður horfir á framhaldsskólastig, háskólastig og svo mætti lengi telja. Getur hv. þingmaður tekið undir með mér um mikilvægi þess að Reykjanesbrautin færist framar og aðeins rætt við mig um samspilið við innviðafélagið, hvort hann sjái að það hjálpi eða flækist fyrir í þessu samhengi.