samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar andsvar. Varðandi Reykjanesbrautina þá er ég sammála hv. þingmanni um að hana beri að færa framar. Þarna skapast gífurleg umferð tvisvar, þrisvar á hverjum einasta degi og þarna er allt stopp á þessum í raun stutta vegarkafla sem er frá Fitjum og upp að Garðskagaafleggjaranum. Þarna skapast öngþveiti á nokkrum gatnamótum á hverjum einasta degi. Ég veit ekki hvað þetta er langt, ég hugsa að þetta séu ekki meira en kannski í mesta lagi 2 km. Þarna eru nokkur hringtorg sem teppast daglega.
Auðvitað á að fara í þetta sem fyrst. Þarna koma næstum allir ferðamenn til landsins og þurfa að aka um þennan veg. Íbúum í Reykjanesbæ og nágrenni hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Þjónusta ríkisins, heilbrigðisþjónusta og menntakerfið hefur ekki stækkað eða náð að eflast í takt við íbúafjölgun á Suðurnesjum. Þess vegna er brýnt að þeir eigi greiða leið til Reykjavíkur, sem er í seilingarfjarlægð í raun og veru, þannig að þeir eigi þessa greiðu leið á meðan ríkið er að byggja upp þá þjónustu sem ríkið hefur vanrækt, klárlega, og íbúar á Reykjanesi hafa kallað eftir því að ríkið fari sem fyrst í að byggja þessa innviði upp að nýju. Samgönguinnviðir og þessi vegur upp á flugstöð er ekki ofverk, held ég, að færa framar sem allra fyrst.