samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svarið. Mig langar til að taka undir með mikilvægi þessara framkvæmda. Við erum að tala um Reykjanesbrautina í heild sinni, eins og hv. þingmaður kemur inn á, sem grundvallarinnviði fyrir ferðaþjónustu, grundvallarinnviði fyrir íbúa sem eru og þurfa að sækja mikið af þjónustu til Reykjavíkur einmitt vegna þess að það hefur ekki tekist að fjárfesta nægilega mikið í uppbyggingu í takt við íbúafjölda. Mig langar því að beina því sérstaklega til meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar að allt svigrúm sem skapast umfram það sem verið er að tala um í breytingartillögunni sem er lögð fram sé hugsað í samhengi við Reykjanesbrautina.
Mig langar til að vera á sambærilegum nótum í seinni spurningu minni og horfa líka á Grindavíkurveginn þegar við erum að tala um Reykjanesbraut — Seltjörn, þann kafla, af því að ég held að það sé önnur framkvæmd sem er tiltölulega ódýr en skiptir máli. Ef við hugsum um sóknarfærin sem þetta svæði á í heild sinni þá tel ég að slík framkvæmd væri eitthvað sem ætti heima framar á dagskránni. Mig langar því líka til að brýna það fyrir meiri hlutanum. Það eru miklar vonir bundnar við innviðafélagið sem verður rætt hér síðar í dag. Það skiptir svo miklu máli að það takist vel til við að færa fjármagnaðar framkvæmdir yfir í innviðafélagið og að svigrúmið sé nýtt í samfélagslega mikilvæg verkefni, alveg eins og Reykjanesbrautin og Grindavíkurvegur eru skýr dæmi um. Ég beini því þeirri spurningu til hv. þingmanns: Er hann sammála mér um að það sama eigi við um Grindavíkurveginn?