157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:04]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar seinna andsvar. Ég kom ekki að því í mínu fyrra svari, spurningunni um innviðafélagið, en það hefur auðvitað vakið athygli og því er ósvarað í raun og veru, frú forseti, hvað meiri hluti samgöngunefndar ætlar með því að gefa því undir fótinn að setja Reykjanesbraut og Suðurlandsveg hugsanlega inn í innviðafélag. Þessir vegir hafa verið byggðir upp. Reykjanesbrautin er tvöföld alla leið að Fitjum og ef menn ætla að taka þennan veg og fara að innheimta veggjöld af honum án þess að neinar framkvæmdir komi til — vegna þess að framkvæmdirnar eru þegar staðreynd. Meira að segja, frú forseti, má kannski nefna það í því sambandi að Keflvíkingar og aðrir Suðurnesjamenn greiddu á sínum tíma, reyndar er töluvert langt síðan, veggjöld á sjöunda áratugnum til að aka þennan veg sem þá var steyptur af Ameríkönum. Þeir greiddu veggjöld og hluti af þessum vegi var náttúrlega unninn þar og greiddur, og að fara að rukka aftur fyrir þennan veg sem nú er fullbúinn að mestu leyti til þess að byggja upp innviði einhvers staðar annars staðar er auðvitað mjösg einkennilegt og meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar og ríkisstjórnin þarf að svara því hverjar fyrirætlanir eru í þessum efnum. Ætla menn virkilega að fara að rukka veggjöld á Reykjanesbrautinni eða Suðurlandsvegi til að byggja upp innviði annars staðar eða hver er meiningin og hverju má fólk treysta? Er þetta eins og margt annað að það er verið að gefa upp boltann, segja ekki of mikið og síðan skellur ný skattlagning á fólki? Er það ætlunin? En Reyknesingar eru ekki ánægðir með að þurfa að fara að borga veggjöld á Reykjanesbrautinni og fá ekkert í staðinn.