157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:07]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég ætla hér að halda áfram hringferð minni. Í síðustu ræðu minni fór ég yfir vegamál á Vesturlandi og ætla núna að horfa til Vestfjarða, fara réttsælis í kringum landið. Það hafa verið umtalsverðar fjárveitingar til vegagerðar á Vestfjörðum á undanförnum árum en þær verða að skoðast í því samhengi hvers lags gríðarleg innviðaskuld var á svæðinu sem hafði byggst upp yfir langt árabil. Það verður að teljast í besta falli ósanngjarnt ef þingheimur ætlar að leggja þá mælistiku á að þær framkvæmdir sem verið hafa í gangi á Vestfjörðum, nauðsynlegar og allt of seint til komnar, á undanförnum árum þrengi að framtíðarfjárveitingum til vegamála þar. Það verður að líta svo á að þegar þessi gamla innviðaskuld verður uppgreidd þá verði Vestfirðir á einhvers lags núllpunkti gagnvart öðrum svæðum hvað það varðar að horft sé til nýframkvæmda. Obbinn af þeim fjárveitingum sem eru til Vestfjarða á framkvæmdaáætlunarhluta áætlunarinnar á næstu fimm árum er vegna lokafrágangs á veginum annars vegar um Gufudalssveit og hins vegar um Dynjandisveg og þar um kring. Þetta verðum við að líta á sem uppgjör á gamalli innviðaskuld á svæðinu því að við sjáum það t.d. bara vel innrammað í umsögn Innviðafélags Vestfjarða með hvaða hætti verðmætasköpun og aukning þar á hefur verið á Vestfjörðum á undanförnum árum. Það er alveg stórkostleg breyting og efnahagsumsvifin gríðarleg. En forsenda þess að sá vöxtur haldi áfram er að samgöngurnar batni af því að með þessum stóru framkvæmdum, sem er svona u.þ.b. að ljúka, er verið að gera upp gömlu skuldina sem var æpandi og augljós öllum sem settu sig inn í þessi mál. Það sem gerist núna í þessari áætlun samanborið við gildandi samgönguáætlun er að það eru að frestast fjárveitingar í Bíldudalsveg, sem er auðvitað gríðarlega mikilvægur vegkafli vegna m.a. flutnings á laxi sem þar er alinn. Strandavegurinn færist sömuleiðis aftar en hann er orðinn enn mikilvægari en áður vegna áforma um uppbyggingu Hvalárvirkjunar. Síðan er það Innstrandavegurinn, sem var, ef ég man rétt, áætlaður til framkvæmda á árunum 2027–2028, kominn aftur til 2030. Ég held að það hafi verið á kjörtímabilinu 2017–2021 þar sem við þingmenn Norðvesturkjördæmis sátum saman og lögðum sérstaklega áherslu á að þessi 5 km kafli, Innstrandavegur, sem er kallaður Heydalsá – Þorpar í kerfum Vegagerðarinnar, yrði kláraður og lagt bundið slitlag á. Það yrði forgangsmál þingmanna kjördæmisins og var fullkomin sátt um það. Hér erum við enn og enn er verið að fresta þessu, núna til ársins 2030.

Síðan er auðvitað Veiðileysuhálsinn sérstakt mál sem kallar eiginlega á sérstaka ræðu síðar í hringferð minni. En ég verð, í samhengi við samgöngur á Vestfjörðum sömuleiðis, að halda því til haga að jarðgangaáætlunin eins og hún er teiknuð upp hér í þessari þingsályktunartillögu er ansi afturhlaðin gagnvart Vestfjörðunum ef við horfum á samgöngumál þar heildstætt; mikilvægi vegabóta og jarðgangaframkvæmda um Mikladal, Hálfdán t.d. vegna samtengingar atvinnusvæðis, sérstaklega í tengslum við eldið og því um líkt, mikilvægi öryggisaðgerða í tengslum við Súðavíkurgöng og síðan hvað varðar praktík, flutning og flæði umferðar um bætt Vestfjarðagöng. Þetta eru mjög fjarlægir fuglar í skógi eins og jarðgangaáætlunin er sett fram. Ég vek athygli á því að á bls. 28 í þingsályktunartillögunni, þar sem jarðgangaáætlunin er teiknuð upp, eru öll göng önnur en Fljótagöng stjörnumerkt. Og hvað þýðir stjörnumerkingin þar? Þar segir, með leyfi forseta: „Verkefni verði vísað til innviðafélags.“ Innviðafélagið, jafn óljóst og það er í allri framsetningu hér gagnvart þinginu, er ekki að fara að taka við öllum þessum verkefnum. Það er bara ekki þannig. Það er útilokað. Bæði er umferðarmagn og möguleg rekstrarafkoma með það í huga þeirrar gerðar að innviðafélagið mun beinlínis ekki hafa heimild til að taka sum þessara verkefna inn til sín, þannig að mér þykir þetta býsna snautlega fram sett miðað við tímann sem hæstv. ráðherra og forverar hans og hafa haft til að undirbúa þessa jarðgangaáætlun. Þetta er allt stjörnumerkt nema Fljótagöngin og það eru, eins og ég segi, fjarlægir fuglar í skógi í þessu samhengi, sérstaklega þegar á að vísa þessu til innviðafélags sem enginn veit hvernig verður raunverulega í laginu.