samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ræðu. Ég var búinn að áætla að ræða við hv. þingmann um allt annað en ég ætla að ræða um núna en breytti því um leið og hv. þingmaður kom inn á þessar stjörnumerkingar sem snúa að jarðgöngum og sömuleiðis innviðafélagið. Hv. þingmaður var á sinni hringferð á Vestfjörðum. Ég held að það sé alveg sama hvar við drepum niður á landsbyggðinni, innviðafélagið getur sennilega ekki tekið yfir nein verkefni nema einn veg sem er Akureyri – Þelamörk, annað er ekki á markaðslegum forsendum. Spurning mín til hv. þingmanns snýr því að því hvernig hv. þingmaður sjái þettas fyrir sér. Hvernig getum við þá nálgast verkefni til að koma þessum óarðbæru verkefnum í framkvæmd? Með hvaða hætti eigum við að gera það? Ég held að það sé lykilatriði. Það hefur svo sem verið bent á það hér að það megi stofna einhver dótturfélög innviðafélags, en væntanlega verða þau þannig að þau fara þá inn í bókhald ríkissjóðs sem A3-hluti en verða ekki sérhlutafélag í framhaldinu.
Margar leiðir hafa verið nefndar hér í ræðustól þingsins í þessari umræðu en ég held að öllum sé ljóst að það sem þarf að gera er náttúrlega að hefja framkvæmdir. Ég hef verulegar áhyggjur t.d. af Fljótagöngum þar sem þau eru bara ekki fjármögnuð, þannig að ég held að það sé akkúrat það sem þarf að horfa til. En hvað telur hv. þingmaður að væri heppilegasta leiðin til þess að koma þessum brýnu og þörfu verkefnum í framkvæmd?