samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er auðvitað spurning sem menn hafa spurt sig að frá því löngu áður en a.m.k. ég kom hingað inn á þing. Staðreyndin er auðvitað sú að sú lausn sem er verið að reyna að teikna upp hér varðandi þetta svokallaða innviðafélag leysir sýnist mér í engu þau verkefni sem blasa við okkur á landsbyggðinni utan Hvítár-Hvítár, ef við reynum að tala það mjög gróft, og vegstubburinn sem hv. þingmaður nefnir skiptir ekki máli í þessari heildarmynd.
Ég hef verið þeirrar skoðunar, ef við horfum á gjaldtöku af umferð og ökutækjum heildstætt, að þá höfum við verið að setja allt of litla fjármuni í nýframkvæmdir og í uppbyggingu vegakerfisins höfum við sömuleiðis verið að skera við nögl í viðhaldi. En þeir peningar sem koma inn í ríkiskassann af akstri og ökutækjum, og held ég þá virðisaukaskattinum alveg til hliðar, eru mun meiri en varið er til uppbyggingar og viðhalds vegakerfisins. Ég hef því verið þeirrar skoðunar að umfang samgönguáætlunar mætti skaðalaust alveg aukast vegna þess að það er allt annars eðlis milljarður sem er settur í fjárfestingu sem nýtist og skapar arð til framtíðar heldur en milljarður sem er settur í rekstur sem er síðan árlegur frá þeim tímapunkti og reynslan sýnir að við komumst aldrei út úr.
Þó að ég sé mikill áhugamaður um samdrátt ríkisútgjalda þá horfa fjárfestingar í innviðum allt öðruvísi við en útgjöld til rekstrar. Miðað við það hversu mér finnst þessi hugmynd um innviðafélag ríkisstjórnarinnar lítt útfærð og að sumu leyti illa útfærð, þá held ég að við séum svolítið að lenda á þeim stað að þurfa að setja þrýsting á að þetta gerist í gegnum samgönguáætlunina sjálfa á meðan innviðaráðherra hvers tíma er ekki búinn að eyðileggja hana sem verkfæri líka sem var nú gerður sérstakur reki að að ná fram í aðdraganda framlagningar þessarar áætlunar.