157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:17]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég met það sem slíkt að þegar við erum að horfa til áætlana, og nú var fyrri ríkisstjórn með áætlun til einhverra ára og þessi gildir til ársins 2040, og það er kosið á fjögurra ára fresti, eða á að vera þannig, á Íslandi og þá endurnýja stjórnvöld umboð sitt eða við skiptum um. Það sem gerist í þessari áætlun er að hún er gríðarlega afturhlaðin. Forgangsröðun verkefna er breytt. Væntingar fólks, t.d. á Seyðisfirði, sem velti fyrir sér hvort nú væri röðin komin að þeim, eru slegnar út af borðinu.

Ég vil spyrja í þessu samhengi hvernig vinnulag væri heppilegast varðandi svona áætlanagerð því að ef t.d. það yrði þannig að stjórnvöld hlypu frá borðinu eftir aðildarkosninguna miklu í haust, það yrðu hér stjórnarskipti og við færum aftur af stað með samgönguáætlun, hvað er þá að marka þessar áætlanir þegar þær varla duga út árið? Við sjáum þetta nákvæmlega eins í fjármálaáætlun. Þegar áætlanir eru svona unnar er því miður ekki mark takandi á þeim.