samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er einmitt kjarni þessa atriðis sem ég var að reyna að halda til haga hér í fyrstu ræðu minni um þetta mál þar sem ég lýsti áhyggjum mínum yfir því að verkfærið sem samgönguáætlun er sé að brotna innan frá, ef svo má segja, vegna aðgerða og ákvarðana núverandi hæstv. innviðaráðherra. Það er þannig, og ég galt líka varhug við því þegar tekin var ákvörðun um það hér á þarsíðasta kjörtímabili, ef ég man rétt, að lengja áætlunartímabilið úr þrisvar sinnum fjögur ár í þrisvar sinnum fimm ár, þannig að heildarlangtímaáætlun fór úr 12 árum í 15 ár, næstum því þannig að fjórða tímabilinu yrði bætt við samkvæmt gamla kerfinu. Þá er þriðja áætlunartímabilið bara orðið einhvers lags minnispunktalisti sem er ætlaður til að friðþægja, friða svæðin sem sjá þá alla vega í fjarska að það sé einhver von um vegabætur en svo bara riðlast þetta allt og breytist, fellur út og er endurskoðað og stokkað.
Mér hefur því þótt, af því að markmið samgönguáætlunar sem verkfæris var að auka fyrirsjáanleika sem myndi lækka verð við framkvæmdir, myndi auðvelda sveitarfélögum að skipuleggja sig á sínum svæðum gagnvart breytingum á vegaframkvæmdum með tilliti til þess hvenær þær kæmu til, allt að falla með þessu og það versta sem stjórnvöld geta gert hverju sinni er að rugla í væntingum svæða gagnvart bættum samgöngum ef það er aldrei meining á bak við. Það er alveg bölvað að finna sig í. Við eigum mýmörg dæmi þess og ég nefndi tvö þeirra hér í ræðunni minni áðan þar sem sífellt er verið að færa gulrótina lengra fram í tímann og mörg mál þeirrar gerðar að samkvæmt þegar gildandi áætlun ætti að vera lokið, þannig að væntingastjórnunin er að misfarast mjög.