157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:21]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég ætla að taka upp þráðinn þar sem við skildum við hann, ég og hv. þm. Bergþór Ólason, hér rétt áðan og tala um áætlanagerð og um framkvæmdir sem hafa lengi verið á áætlun. Heimamenn á hverjum stað fyrir sig hafa borið miklar væntingar í brjósti til þess að geta loksins fengið veg sem mögulegt er að keyra um án þess að sprengja dekk eða eyðileggja bíl. Gott dæmi um svona veg er Bárðardalsvegur vestari. Árið 2020 var hann settur inn á áætlun og það áttu að hefjast framkvæmdir, minnir mig, 2021. Síðan var því breytt og síðan er það alltaf fært aftar og aftar. En til þess svona, eins og maður segir, að stinga gulrót upp í íbúa Bárðardals er farið af stað með það að taka 3 km frá þjóðvegi 1 að Öxará, 3 km, og eftir standa 34. Þetta er gott dæmi um það hvað gerist þegar verið er að færa hlutina til. Við erum að gera áætlanir og áætlanir standast ekki, við erum alltaf að skapa væntingar og eðlilega fer almenningur að hætta að taka mark á þeirri áætlanagerð og því sem verið er að gera. Það væri mjög mikilvægt og mjög heppilegt fyrir okkur að það verklag sem stuðst er við í dag væri endurskoðað.

Það var mjög áhugaverð ræða sem hv. þm. Jón Gunnarsson flutti hér í gær eða fyrradag sem sneri að þessu verklagi við samgönguáætlun. Ég held að það sé öllum ljóst að við deilum ekkert um innviðaskuldina svokölluðu, hún er öll til staðar. En þetta snýst um fjármagnið sem við setjum til þess að koma verkefnum áfram og hverju sinni er þetta alltaf barátta um það hvernig við forgangsröðum fjármunum til verkefna. Við höfum tekið umræðu, held ég, í öllum landshlutum. Við vorum svo heppin í gær að 1. þm. Suðvest. kom hér og ræddi um höfuðborgarsvæðið í sinni ræðu. Það hefur skort á það að þingmenn höfuðborgarsvæðisins kæmu af fullum þunga inn í þessa umræðu. Eðlilega hefur það svolítið mikið verið þannig og litast af því að þingmenn landsbyggðarkjördæmanna hafa verið fyrirferðarmiklir í þessari umræðu og er ég nú ekki saklaus af því. En lykilatriðið er þetta: Hvernig ætlum við að gera þetta? Hvernig byggjum við upp samgöngukerfið?

Ég hef verið hlynntur því og verið jákvæður gagnvart því að við borgum veggjöld þegar nýframkvæmdir eru annars vegar. Ég held að íbúar við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslu og þeir sem nota Vaðlaheiðargöng heilt yfir sjái ekki eftir þeim fjármunum sem menn greiða til þess að nota göngin. Þegar göngin voru tekin í notkun voru háværar raddir um að þetta væri allt of hátt gjald og það myndi enginn nota göngin en staðreyndin er önnur. Það sem skiptir máli þegar svona mikilvæg samgönguframkvæmd er tekin í gagnið er að það verður, held ég, aldrei metið til fjár. Þau verða aldrei metin til fjár þau lífsgæði íbúa svæðisins og notenda þessara samgöngumannvirkja sem verða við það að fá öruggari og betri samgöngur. Ég held að það sé erfitt að verðmeta það en mér finnst mjög mikilvægt að koma því að í þessari umræðu að um leið og við auðveldum fólki að ferðast á milli staða þá aukum við lífsgæði. Við getum líkt þessu bara við æðakerfi líkamans. Þegar það koma þrengingar og æðarnar flytja ekki það magn af blóði og súrefni sem þarf, þá hægist á öllu. Það er nákvæmlega það sem gerist og hefur gerst í áratugi; æðakerfið eða samgöngukerfi landsins hefur gefið eftir allverulega. Það sem gerist við það er að það verða alltaf færri og færri notendur úti á jöðrunum. Það verður alltaf meiri og meiri áskorun að viðhalda byggð í landinu en flest erum við sammála um, ef ekki öll, að við viljum hafa byggð á öllu landinu. Þá verðum við líka að skapa aðstæður þess efnis að fólk geti búið á ákveðnum stöðum og þá gerum við það með samgöngum.

Það er eitt áhugavert dæmi sem mig langar að koma að, frú forseti, um hvað hlutirnir hafa breyst. Um 1900, held ég að það hafi verið, fyrir 130, 140 árum síðan, þá bjuggu 400 íbúar á Mjóafirði. Í dag búa þar tíu. Þetta er vissulega dæmi sem eru ákveðnar öfgar í en þetta segir okkur bara hvernig hlutirnir hafa breyst. Einhverra hluta vegna hefur sú staða skapast að fólk sækir í að búa í þéttbýli og síðan náttúrlega eru öfgarnar það miklar yfirleitt eins og hjá okkur Íslendingum að það eru allir helst á sama stað og ég held að við séum mjög ofarlega þegar kemur að því hversu röng búsetudreifingin er. Það að það búi um 80–90% íbúa landsins hér á suðvesturhorninu er engri þjóð, held ég, hollt og ekki skynsamlegt. Þessu þurfum við að reyna að breyta og ég held að samgöngur séu lykillinn að því. Greiðar samgöngur eru til staðar fyrir íbúa landsins, sem er mjög mikilvægt, þá eru meiri líkur á því að fólk setjist að úti á landi og þá eflum við sömuleiðis atvinnulífið á svæðinu. Allt helst þetta í hendur.

Hv. þm. Bergþór Ólason kom inn á það áðan að hann væri á hringferð um landið í sínum ræðum sem hann hefur flutt hér og hann var staddur á Vestfjörðum. Það er mjög jákvætt og ánægjulegt að sjá þær samgöngubætur sem hafa átt sér stað á Vestfjörðum. En það er töluvert mikið eftir enn. Hv. þingmaður kom sömuleiðis inn á það að t.d. vegurinn við Bíldudal niður á Patreksfjörð, um Hálfdan og fleiri staði — það var áætlað í fyrri áætlunum að þær framkvæmdir væru settar fyrr af stað en þessi áætlun er allverulega afturhlaðin og framkvæmdunum frestað. En gleymum því ekki og munum það að það hafa verið gríðarlegar samgöngubætur á Vestfjörðum. Það er jákvætt. En það er líka mjög mikið eftir að gera á því svæði, bæði hvað varðar jarðgöng og vegabætur til að efla mannlíf og atvinnulíf á svæðinu.

Virðulegur forseti. Við getum líkt samgöngukerfi okkar við æðakerfi. Þegar æðakerfið (Forseti hringir.) hættir að flytja þau næringarefni sem við þurfum á að halda þá dregur alltaf úr starfsemi líkamans (Forseti hringir.) og það er akkúrat það sem gerist ef samgöngukerfið er ekki í lagi.