157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:32]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Það er auðvitað mikilvægt fyrir okkur þingmenn Reykvíkinga að hlýða á öll þessi sjónarmið og mér fannst athyglisvert það sem kom fram hjá hv. þingmanni um gildistíma samgönguáætlunarinnar. Ef ég skildi þingmanninn rétt held ég að við deilum þeirri skoðun að það þurfi að vera stöðugleiki í framkvæmdinni þannig að áætlanir, ég tala nú ekki um þegar þær eru gerðar til svo langs tíma, ná yfir mörg kjörtímabil, þurfa auðvitað að standast. Annars er bara betur setið heima. Þá hefði ég áhuga á að heyra aðeins frá hv. þingmanni um akkúrat þetta atriði. Það er óheppilegt og ósanngjarnt gagnvart þeim byggðum sem kannski treysta á svona áætlanir eða fyrirætlanir stjórnvalda að þurfa svo að sæta því með meiri háttar vegaframkvæmdir eða gangagerð, eins og á Austurlandi, að forgangsröðuninni þar sé breytt með jafn viðurhlutamiklum hætti og hér er lagt upp með og því vildi ég heyra aðeins í hv. þingmanni hvað þetta varðar. Ég hefði sjálfur talið að það væri skynsamlegt fyrir Ísland að vinna að máli eins og þessu, sem er mjög mikilvægt, í breiðri sátt í þingheimi þannig að áætlanirnar gætu einmitt staðist óháð því hvaða stjórnvöld eru við völd hverju sinni.