157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:34]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég held að það sé akkúrat þetta sem hv. þingmaður kom inn á, þ.e. hvernig við ætlum að skapa áætlun sem er trúverðug. Fyrsta skrefið er að áætlunin standist og það sé sátt og yfirleitt hefur verið tiltölulega breið sátt um allar samgönguframkvæmdir og áætlanir sem hafa verið gerðar. Vissulega tökumst við á og viljum fá að setja þetta verkefni á undan í röðinni o.s.frv. en lykilatriðið er að um leið pólitíkin fer í það að hræra alltaf í pottinum, segja svo að það komi ný ríkisstjórn og þá er farið að hræra í pottinum, þá standast áætlanirnar ekki. Síðan erum við núna að tala um áætlun frá 2026–2040 sem er skipt niður í aðgerðaáætlun og framkvæmdaáætlun. Lykilatriðið er að þegar þú ert kominn með svona langa áætlun verður freistni til þess hjá stjórnvöldum hverju sinni þegar það vantar pening — þá er gott að styðjast bara við áætlunina og svo er ýtt aðeins aftar og svona lengt í áætluninni. Ég tók dæmi í minni ræðu hér áðan um Bárðardalsveg vestari sem er eiginlega búinn að vera á áætlun síðan 2018, held ég, og núna fyrst sjáum við að það verður kannski 2031 sem framkvæmdum lýkur miðað við þá áætlun sem hér er um rætt. Þetta er akkúrat það sem er ekki gott og þessu þurfum við að breyta.