samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég held að þetta sé einmitt lykilatriði sem hann nefndi, trúverðugleikinn. Hann skiptir öllu í máli eins og þessu. Maður spyr sig auðvitað spurninga hvað varðar samgönguáætlunina sjálfa og raunar þessi þrjú mál sem eru öll nátengd, þ.e. samgönguáætlunin, frumvarpið um innviðafélagið og svo fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þetta helst allt saman í hendur og mér finnst það í raun og veru alveg ótrúlegt þegar við erum hér við síðari umræðu um samgönguáætlun að annars vegar sé samgönguáætlun fyrst tekin á dagskrá, á undan innviðafélaginu, og hins vegar að enn sé öllum þessum stóru spurningum ósvarað. Framkvæmdirnar eru sagðar fullfjármagnaðar, annaðhvort vegna þess að þær eru í fjármálaáætluninni eða þá að innviðafélagið muni einhvern veginn galdra fram tekjurnar til að standa undir þessu, en það er aldrei útskýrt nákvæmlega hvernig menn ætla að standa að því. Ég var nú að kynna mér nefndarálit minni hluta fjárlaganefndar um innviðafélagið og þá sló mig þessi setning í nefndarálitinu að það hefði engin umræða farið fram innan nefndarinnar um frumvarpið. Sjálfur reyndi ég að eiga hér orðaskipti við hæstv. fjármálaráðherra við 1. umræðu um innviðafélagið og svörin sem þaðan komu voru bara út og suður, svo ég orði það alveg eins og það er, þannig að ég ætla að spyrja hv. þingmann hvort hann sé einhverju nær um þessi efni en sá er hér stendur.