samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og ég held að hann sé ekki eini hv. þingmaðurinn sem klórar sér í kollinum yfir því hver tilgangur og markmið innviðafélagsins eru. Aftur á móti vil ég meta það þannig að ég held að meiri hlutanum gangi allt gott til þegar kemur að þessu. Það sem verra er er að það skortir umræðuna um málið og það sem kemur náttúrlega verulega á óvart og kemur fram í minnihlutaáliti úr fjárlaganefnd varðandi innviðafélagið er að það hafi ekki átt sér stað umræða innan nefndarinnar um málið. Það er mjög sérstakt. Lykilatriðið er að þegar við komum fram með ákveðin mál séu einhverjar skýringar á því hver tilgangur málsins er o.s.frv. og þá þarf það mál ákveðna umræðu. Við höfum oft kallað eftir því í minni hluta hér á þingi því að það hefur oft skort á að stjórnarmeirihlutinn taki þátt í umræðunni. Ég vil samt koma því á framfæri, frú forseti, og þakka fyrir það að framsögumaður málsins, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, hefur setið nær alla umræðuna, held ég að ég geti sagt, eða því sem næst, eiginlega alla umræðuna. Það er bara virðingarvert og þakkarvert og sömuleiðis hefur Sigurður Helgi Pálmason verið ansi drjúgur hér í salnum. Það sem er lykilatriði þegar kemur að öllum svona málum eru skoðanaskipti um málið en þau verða þá að koma fram og til þess að við getum haft skoðanaskipti þarf stjórnarmeirihlutinn að taka þátt í umræðunni. Ég held að það sé ekki nóg að sitja og hlusta heldur væri mjög mikilvægt ef stjórnarmeirihlutinn kæmi hér af enn meiri krafti inn í umræðuna til þess að gera hana dýpri og betri.