samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Þegar kemur að samgönguáætlun er það þannig að hér er búið að blása í mikla herlúðra, tala um að það sé verið að ræsa vélarnar, rjúfa kyrrstöðuna og nú eigi að fara af stað að bora. Reyndar er hæstv. samgönguráðherra á skjön við Vegagerðina sjálfa þegar kemur að dagsetningum og jafnvel ártölum í því hvenær eigi að byrja að bora Fljótagöngin, en látum það liggja á milli hluta.
Það er algerlega á hreinu að hér er búið að skreyta þetta með miklum fyrirsögnum en þegar kafað er dýpra eru þetta einungis um 72 milljarðar á ári sem við erum að setja í samgöngumál á Íslandi, (Gripið fram í: Nei, nei. )72 milljarðar á ári. Framkvæmdaáætlunin er 361,5 milljarðar á fimm árum. Hvað þýðir það, virðulegur forseti? Jú, það þýðir að við erum að setja innan við 4% eða um 4% af fjárlögum í samgöngumál, í allt sem snýr að samgöngumálum. Þetta eru ekki bara vegir og þetta eru ekki bara göng, þetta eru sjóvarnir, vetrarþjónusta o.fl. Ástandið í Vestmannaeyjum hefur sýnt okkur að það vantar einhvers konar plan varðandi ferjur. Jú, vissulega er í samgönguáætlun búið að setja niður ártöl en það eru engir peningar í ferjur á Íslandi, engir peningar. Ný Grímseyjarferja á að koma 2031. Þetta er einhver óskalisti. Ártölin sem eru í samgönguáætlun eru óskalisti Vegagerðarinnar en ríkið, hæstv. ríkisstjórn, hefur ekki sett einn einasta pening í að byggja nýjar ferjur.
Þetta er í rauninni allt eftir þessu, virðulegur forseti, og þá fer maður að velta fyrir sér: Væri möguleiki að setja meiri peninga í samgöngumál á Íslandi? Hæstv. ríkisstjórn talar með mjög þungum tón þegar kemur að því að þurfa að finna peninga í hitt og þetta og það gengur allt mjög erfiðlega. Þá veltir maður því fyrir sér að það var ekkert mál að finna 15 milljarða á ári í að breyta leikskólastiginu í landinu. Það var ekkert mál fyrir framan Jysk í Kópavogi, ekkert mál, 15 milljarðar á ári. Það var ekkert mál að finna 5–10 milljarða á ári í að tengja bætur við launavísitölu, ekkert mál. Það var ekkert mál að finna 3 milljarða í að stækka Þjóðleikhúsið. Það var ekkert mál að finna 700 milljónir á ári í að búa til nýja ríkisóperu. Þetta snýst um forgangsröðun. Þetta snýst um forgangsröðun þannig að þegar fulltrúar hæstv. ríkisstjórnar, hv. þingmenn eða hæstv. ráðherrar, koma hér upp og segja: Ja, það er ekki til meiri peningur — jú, jú, það er víst til peningur en það er bara verið að ráðstafa honum í annað. Það er greinarmunur þar á. Bara í þessum dæmum sem ég er að taka er verið að setja 21–26 milljarða á ári í eitthvað annað en samgönguáætlun, í önnur forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar. Það er vel hægt að ákveða að hér ætlum við að hafa tvenn göng í einu í gangi. Það er vel hægt að ákveða að fjármagna ferjur. En þegar horft er fram hjá slagorðunum og öllu samfélagsmiðlaefninu og froðunni er fleytt af er ekki mikið eftir.