samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir ræðuna. Hann var talsvert að ræða ferjumálin sem eru náttúrlega í algjörum ólestri eins og þekkt er. Það er náttúrlega hrikalegt ástand varðandi samgöngur til Vestmannaeyja. Svo er náttúrlega varaferjan sem að öllu jöfnu siglir um Breiðafjörðinn ótt og títt kölluð til og nýbúið að kalla hana núna frá í þrjár vikur og það hefur mjög slæmar afleiðingar fyrir samgöngur frá Stykkishólmi yfir á Brjánslæk vegna þess að ferjan sem mun leysa Baldur af siglir ekki á Brjánslæk. Hún siglir bara milli Stykkishólms og Flateyjar og hefur miklu minni burðargetu en ferjan Baldur þannig að þetta hefur allt keðjuverkandi áhrif. Auðvitað þarf að mínu viti að horfa á hlutina heildstætt og ég efast ekki um að þingmaðurinn sé sammála mér í því.
Þó svo að þingmaðurinn hafi bara aðeins komið inn á jarðgöngin örstutt, kannski tvær setningar, þá langar mig að spyrja hann um þau vegna þess að hann er þingmaður Norðausturkjördæmis og nú hefur verið snúið við ákvörðunum í fyrri samgönguáætlun varðandi Fjarðarheiðargöng. Austfirðingar hafa eðlilega mótmælt þeim ráðstöfunum sem koma fram í þessari áætlun. Nú er búið að setja Fljótagöng í 1. sæti og þau eru gríðarlega mikilvæg. (Forseti hringir.) Ráðherrann hefur ítrekað sagt að það eigi að byrja að bora 2027 en það er ekki búið að undirvinna eiginlega neitt. Þannig að mig langar að spyrja þingmanninn: Telur hann að það verði hægt að byrja að bora á næsta ári, 2027?