samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar spurningu. Það er nefnilega málið. Hæstv. ráðherra hefur sagt: Við ætlum að byrja að bora á næsta ári, þrátt fyrir að Vegagerðin og aðrir fagaðilar séu búnir að segja að það verði ekki byrjað að bora á næsta ári. Það getur vel verið að einhverjar vegaframkvæmdir eða eitthvað slíkt byrji á næsta ári en það er ekki það sama og að byrja að bora, hv. þingmaður. Það má ekki misskiljast, Fljótagöng eru mikilvæg göng. Fljótagöng eru góður gangakostur. Ég myndi líka segja að ný Múlagöng og ný göng frá Ólafsfirði til Dalvíkur væru líka gríðarlega mikilvægir gangakostir fyrir samfélagið í Fjallabyggð, að tengja saman þar sem göngin kæmu rétt út fyrir Dalvík. Í fyrsta lagi myndi það gefa möguleika á því að sameina, það kæmi ábyggilega upp samtal um sameiningu sveitarfélaga og 90% af þeirri þjónustu sem samfélagið í Fjallabyggð sækir út fyrir samfélagið er sótt í Eyjafjörðinn, ekki í Skagafjörðinn eða til Reykjavíkur. Dagsdaglega er fólk að sækja vinnu, þjónustu, verslun og annað í Eyjafjörðinn. Það er í rauninni misvísandi að segja og það held ég að allir geri sér grein fyrir því og ég held að íbúar Fjallabyggðar geri sér grein fyrir því líka — það er búið í mörg, mörg ár að undirbúa og búið að eyða hundruðum milljóna, 700 milljónum í rannsóknir, allt klárt, og svo kemur nýr ráðherra sem bara breytir forgangsröðuninni. Maður veltir fyrir sér í rauninni hvaða gildi svona plagg hefur sem við erum að ræða nema kannski fyrstu fimm árin. Ég hef velt því fyrir mér hér í andsvörum og fyrri ræðum hvaða gildi þetta plagg hefur í rauninni á öðru og þriðja tímabili.