samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir prýðisgott andsvar. Það er nákvæmlega þetta, hvaða gildi samgönguáætlun hefur. Það er vonandi hægt að treysta því sem ákveðið er til fimm ára. Þetta segir manni að það er ekkert hægt að treysta neinu umfram það tímabil. Þess vegna hef ég t.d. sagt varðandi Fjarðarheiðargöng, sem eru líka mikilvæg — ég er ekki í þeirri stöðu að geta skorið úr um það hvað er mikilvægast, það eru ótal mörg göng sem þarf að gera — ég skil fullkomlega vonbrigði Austfirðinga vegna þess að það er búið að verja, eins og þingmaðurinn sagði, 700 milljónum í undirbúning og það er allt klárt. Hverju er að treysta ef ekki er hægt að standa við svona ákvarðanir sem er búið að undirvinna? Eins og þingmaðurinn sagði þá verður kannski hægt að byrja að leggja vegi eða eitthvað slíkt fyrir Fljótagöngin, sem eru líka mikilvæg. Þau eru líka gríðarlega mikilvæg og mikið öryggi í því að þau verði gerð en ég hef ekki trú á því að það verði byrjað að bora 2027, en kannski, eins og þingmaðurinn segir, að leggja vegi.
Ég á tíu sekúndur eftir. Ráðherrann hefur bundið miklar vonir við innviðafélagið, líka varðandi jarðgangagerð, þannig að mig langar að spyrja þingmanninn: Telur hann að Fljótagöngin séu verkefni sem gæti fallið undir innviðafélagið, sem er óstofnað?