157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[12:54]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar seinni spurningu. Innviðafélagið sjálft verður einhvers konar mamma, móðurfélag, C-félag. Fyrir þá sem ekki vita er C-félag ekki með ríkisábyrgð. Síðan undir móðurfélaginu verða stofnuð dótturfélög. Það verða mörg C-félög sem verða þá um ýmsar arðsamar framkvæmdir sem fjárfestar sjá hag í að taka þátt í. Þær standa undir sér. Síðan er líka möguleiki á því að stofna dótturfélög sem eru A3-félög. Það eru félög sem í rauninni ríkið þarf að borga með og eru með ríkisábyrgð. Fljótagöng eru eitt slíkt verkefni og Fljótagöng verða líklega A3-dótturfélag inni í innviðafélaginu. Það er í rauninni þannig að við getum búið til hundrað A3-dótturfélög inni í innviðafélaginu og sett þar inn alls konar óarðbærar framkvæmdir í þeim skilningi, út frá excelnum, af því að það er ekki samfélagslegi þátturinn heldur þjóðhagslegi þátturinn sem skiptir máli. Óarðbærar framkvæmdir eru settar þar inn. Fljótagöng munu fara þarna inn, geri ég ráð fyrir. Það er a.m.k. talað með þeim hætti í greinargerðinni með frumvarpinu. Það er í rauninni þannig að innviðafélagið tekur að sér Fljótagöngin í formi dótturfélags og ríkið borgar með. Svona verða kannski til tugir eða hundruð dótturfélaga um hin og þessi verkefni alls staðar úti á landi sem eru ekki eins arðbær kannski og Reykjanesbraut eða Sundabraut eða fjölfarnir vegir og mannvirki. Ríkið mun setja þessi verkefni inn og þá eru þau ekki á samgönguáætlun í þeim skilningi en samt með ríkisábyrgð og ríkið borgar inn.