samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega yfirferð. Fyrsta spurningin mín til hv. þingmanns er hvort ég hafi tekið rétt eftir því að hann hafi sagt í ræðunni, og ef svo er er ágætt að halda því þá til haga, að hæstv. forsætisráðherra hafi lofað 15 milljörðum kr. í leikskólamálin á þessum kosningabaráttufundi fyrir framan Jysk í Kópavogi. Fyrsta spurningin er hvort ég hafi tekið rétt eftir þar því að það er ágætt að setja þá upphæð í samhengi við hin ýmsu verk sem við erum að ræða hér.
Síðan langar mig að nefna við hv. þingmann, enda heimamaður, umsögn Fjarðabyggðar, með leyfi forseta:
„Fjarðabyggð ítrekar að Suðurfjarðarvegur er ein brýnasta samgönguframkvæmdin innan sveitarfélagsins sem og fjórðungsins og þjóðhagslega mikilvæg öllu landinu. Vegurinn er hluti af þjóðvegi 1 og gegnir lykilhlutverki í flutningum á útflutningsafurðum, þar sem hann tengir m.a. saman þrjár af fjórum stærstu fiskihöfnum landsins við meginvegakerfi Íslands og við Mjóeyrarhöfn sem er ein af stærstu útflutningshöfnum landsins.“
Þegar verið er að reyna að segja okkur hv. þingmönnum úr Norðausturkjördæmi að samkvæmt einhverjum prósentuútreikningum komi Norðausturkjördæmi alls ekki illa út eða ekki svo illa út þá er þetta engu að síður staðan. Þau verkefni sem verða að komast á dagskrá eru ekki á dagskrá nema sem einhver fögur fyrirheit til framtíðar. Þess vegna vildi ég spyrja hv. þingmann, fyrri spurningin er varðandi Jysk og sú seinni hvort hann deili með mér þeirri sýn að þetta séu framkvæmdir sem þoli enga bið, því að þetta eru vegirnir sem eru að búa til gjaldeyri eða sjá um að flytja vöruna sem býr til gjaldeyri.