samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans fyrra andsvar hér. 15 milljarðarnir eru sá kostnaður sem er búið að reikna fyrir hið opinbera ef farin verður þessi leikskólaleið Samfylkingarinnar, þannig að einhvers staðar eru þeir peningar til, einhvers staðar á að finna þá peninga. Ég veit ekki nákvæmlega hvar en mig grunar nú að það sé bara eins og hjá góðum og gildum vinstri mönnum; í vösum skattgreiðenda, með því að hækka skatta og gjöld.
Þá að kannski aðalspurningu hv. þingmanns varðandi Suðurfjarðaveg. Ég nefndi það í fyrstu ræðu minni þar sem ég fór yfir hvað væri ánægjulegt í samgönguáætlun í kjördæminu hjá mér og hv. þingmanni og síðan hvað væru vonbrigði, og vonbrigðalistinn var því miður miklu lengri, að það er þannig ef við færum göng um Suðurfirði — og ég held að það sé eitthvað sem við verðum að skoða að fara frekar göng frá Fáskrúðsfirði til Stöðvarfjarðar og Stöðvarfirði til Breiðdalsvíkur, ef það á að byggja upp nýjan veg um Suðurfirði þarf að fara um skriður. Það er ástæðan fyrir því að við erum að fara inn í Fljótagöng, til að losna við skriðurnar, af því að vegurinn er að síga í sjó fram. Sama ástand er á milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar, sama ástand er á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Og hvernig ætlarðu að byggja upp nýjan rándýran veg? Þetta eru ekki löng göng, 4,9 km göng og 3,9 km göng sem myndu stytta vegkaflann um 20 og eitthvað kílómetra, þjóðveg 1, spara kostnað í viðhaldi og spara kostnað í vetrarþjónustu um ókomna tíð. Það eru raunverulegar aðgerðir, að horfa fram á við.