samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir prýðilegt svar. Það er einn gangakostur þarna sem er líka bara í einhvers konar hillingum, langt inni í framtíðinni, líklega einhver sá alskynsamlegasti af þeim öllum, (JGH: Lónsheiði.) Lónsheiði, elsta berg á Íslandi sem þýðir á íslensku auðveldast að bora og tengir þar af leiðandi Austurland loksins almennilega við Suðurland. En við tökum það, hv. þingmaður, fyrir síðar.
Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann aðeins út í það hvort hann sjái þetta eins og ég þegar verið er að reikna út hlutfall ráðstafaðra peninga milli kjördæma og nú á að fara að reyna að telja okkur trú um að við séum að koma bara ágætlega út hérna, Norðausturkjördæmi, með einhverri prósentuleikfimi, en á sama tíma og þetta frumvarp um innviðafélagið er á leiðinni hér inn, og væntanlega er ætlunin að leiða það út líka, erum við að fara að búa til félag sem verður C-félag, eins og hv. þingmaður fór ágætlega yfir. Við erum að búa til einhverja mömmu og síðan koma dótturfélögin, A3-félögin, til að takast á við þessi verkefni sem innviðafélagið hreinlega má ekki taka, það má ekki taka nema þar sem arðsemin er undir ákveðnu. Þetta hvoru tveggja fer svo út fyrir sviga og er ekki á listanum sem hluti af samgönguáætlun. Stærstu verkefnin verða sér og þá fæst einhver furðuprósenta um að þetta svæði eða hitt komi ágætlega út. Er hv. þingmaður sammála mér í því að þarna sé um ákveðna talna- eða prósentuleikfimi að ræða til að láta samgönguáætlun líta betur út? Því að það er algerlega ljóst að einhverjar örfáar brýr yfir bæjarlæki hér og þar munu ekki segja neitt á móti þessum risaverkefnum sem þessu félagi er ætlað að eiga við.