157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[13:03]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er í grunninn fylgjandi stofnun innviðafélags (ÞorgS: Já, já.) og held að ég og hv. þingmaður séum sammála í því. En ég held að ég og hv. þingmaður deilum því líka að það að ætla að stofna innviðafélag og fara að rukka veggjöld ofan á allt annað sem er búið að rukka og er verið að rukka, hækkuð kolefnisgjöld, kílómetragjald, sem er ein mesta geymasýra sem fundin hefur upp í íslenskri skattlagningu, og hækkun, næstum því tvöföldun, á vörugjöldum á ökutækjum — það heitir á góðri íslensku að kreista blóð úr steini. Það er verið að ofurskattleggja íslenska ökutækjaeigendur. Ef þetta hefði verið ný nálgun, ef innviðafélagið hefði verið notað sem ný nálgun í skattheimtu, væri bara um allt annan hlut að ræða. En það er ekki svo. Þetta er bara enn eitt lagið í risastórri randalínu ríkisstjórnarinnar, að búa enn til nýja skattlagningu. Hv. þm. Jón Gunnarsson hefur komið inn á það í ræðum sínum hvernig við getum í rauninni séð fyrir okkur, og ég hef komið inn á það líka, framtíðarfjármögnun íslenska vegakerfisins. Ég verð að segja að það er hálfsorglegt að horfa upp á þessa ofurskattlagningu og horfa upp á hv. þingmenn Viðreisnar þegja þunnu hljóði enn og aftur þegar verið er að íþyngja fólkinu í landinu og íslenskum fyrirtækjum enn meira með aukinni skattlagningu. (Forseti hringir.) Ég held, virðulegur forseti, að það sé ekki gott að vera þingmaður Viðreisnar í þessari ríkisstjórn.