157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[13:50]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Mér virðist stjórnarandstaðan frekar vilja tala um tiltekna fréttatilkynningu um þessa skýrslu en skýrsluna sjálfa og það er svo sem bara í anda umræðunnar hér í þessum sal að það er mikið flúið inn í formsatriðin og tæknilegu atriðin frekar (Gripið fram í.) en kjarna máls. Ef einhver hélt og ef stjórnarandstaðan hér í þessum sal hélt að við værum að fara að fá einhvers konar stóradóm um það hvort það sé betra fyrir Ísland að vera með krónu eða evru þá verður viðkomandi auðvitað fyrir vonbrigðum. Það er engin leið að reikna það út í einhverju excel-skjali. Óvissuþættirnir eru einfaldlega of margir og stórir. Það er alveg hægt að klúðra gjörsamlega upptöku evru, rétt eins og það er hægt að láta það ganga upp að reka einhvern smæsta gjaldmiðil í heimi þrátt fyrir allan kostnaðinn sem því fylgir. Og sá kostnaður er ekki bara fólginn í verðtryggingu, kostnaðarsamri peningastefnu og ýmiss konar höftum og skítareddingum, heldur er hann líka fólginn í glötuðum tækifærum; fyrirtækjum sem aldrei komast á legg, til að mynda í iðnaði og nýsköpunargreinum sem eru viðkvæmar fyrir gengissveiflum. Hann er fólginn í viðskiptum, fjárfestingum og störfum sem aldrei verða til. Þetta er m.a. kostnaðurinn.

Nýlega kom út mjög viðamikil skýrsla í Svíþjóð á vegum atvinnurekendasamtaka þar í landi þar sem er verið að velta upp kostum og göllum þess að kasta sænsku krónunni og taka upp evru. Lars Calmfors heitir hagfræðingurinn sem leiddi vinnuna. Hann leiddi sams konar vinnu fyrir sænsk stjórnvöld rétt fyrir aldamót. Þá komst hann að þeirri niðurstöðu að Svíar ættu að standa utan við þessa evrópsku gjaldmiðlatilraun. Nú hefur hann algjörlega skipt um skoðun. Hvers vegna? Ekki síst vegna þess að skýrslan sýnir fram á að það hafi verið vanmetið stórkostlega hvað myntsamstarf getur haft jákvæð áhrif á utanríkisviðskipti og beina erlenda fjárfestingu í litlu opnu hagkerfi. Hann er að tala um Svíþjóð, sem er 10 milljóna þjóð, en ekki um 400.000 manna þjóð eins og okkur hér á Íslandi þar sem svona rök vega margfalt þyngra. Við vitum að upptaka evru myndi hafa í för með sér lækkandi viðskiptakostnað, aukna samkeppni, minni gjaldeyrisáhættu, aukin viðskipti við útlönd, beina erlenda fjárfestingu og greiðari aðgang að fjármálamörkuðum. Þetta eru þættir sem styðja við markmiðin um lægra verðlag og lægri vexti. En það liggur líka fyrir að við upptöku evru myndi reyna enn meira en áður á festu í ríkisfjármálum og aga á vinnumarkaði. En það er eitthvað sem við ættum auðvitað að temja okkur algerlega óháð því hvað gjaldmiðillinn okkar heitir.

Og þá er kannski stóra spurningin, virðulegi forseti: Getur fyrirætlunin um upptöku evru skapað akkerið sem við þurfum til þess að rjúfa vítahringinn á vinnumarkaði og í efnahagslífinu almennt? Þetta er spurning sem ég held að við ættum kannski að velta fyrir okkur fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Framtíð Íslands, hún er björt sama hvort þjóðin segir já eða nei í ágúst. Já er svar sem opnar nýjar dyr, veitir okkur möguleika til að styrkja enn frekar fullveldi þjóðarinnar, styrkja stöðu okkar í Evrópusamstarfinu. Ef svarið er nei þá er það líka mjög dýrmæt og mikilvæg leiðsögn frá kjósendum sem við hér á Alþingi eigum að virða. Ég er ekkert endilega harðasti aðildarsinninn í mínum flokki, ég er í já, kannski-hreyfingunni. Ég sé stóra og augljósa kosti við Evrópusambandsaðild en ég hef líka töluverðar áhyggjur af ýmsum atriðum. Það er alveg sama hvað ég les margar greinar eftir Þorstein Pálsson eða Ernu Bjarnadóttur, það er engin leið að vega það og meta, kostina og gallana, tækifærin og áskoranirnar, nema við höldum áfram með aðildarviðræðurnar, nema við höldum áfram, setjumst við samningaborðið og látum reyna á það til fulls á hvaða forsendum Ísland gæti mögulega gengið í Evrópusambandið. Þetta er spurning um það hvort við viljum vita eða ekki vita. Þetta er spurning um það hvernig við Íslendingar beitum okkar fullveldi. Mér finnst „patríótíska“ svarið vera já. Ég deili ekki svartsýni og uppgjafartóni stjórnarandstöðunnar. Ég hef trú á Íslandi í þessum efnum og ég tel að staða okkar sé sterk. En nú er það þjóðarinnar að taka afstöðu og það er okkar stjórnmálamanna að fylgja þeirri leiðsögn, hvort sem svarið verður já eða nei.