Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og hv. málshefjanda fyrir framtakið. Það er mikilvægt að við fáum að ræða þessa skýrslu og ekki síst framgöngu hæstv. ráðherra og stjórnarliða í tengslum við útgáfu hennar. Fyrst langar mig að nefna eitt: Þegar hæstv. ráðherra kemur hér fyrir þingið, fyrir þingnefndir og hér til sérstakrar umræðu um tiltekið efni þá gerir hann það í krafti embættis síns; embættis sem hann situr í skjóli okkar alþingismanna. Hæstv. ráðherra kemur ekki hingað sem stjórnmálamaður til að slá keilur gagnvart sínum kjósendum heldur til að svara spurningum og eiga orðastað við hv. þingmenn um embættisverk sín eða um málefni sem eru á hans könnu. Nú ræðum við skýrslu sem hæstv. ráðherra pantaði sérstaklega, handvaldi til þess fólk. Engu að síður virðist ljóst að niðurstöður skýrslunnar hafi verið hæstv. ráðherra vonbrigði sem er heittrúaður á aðild Íslands að ESB og upptöku evru hér á landi. Hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson talaði hér um vonbrigði. Það er svo augljóst að ESB-sinnar urðu fyrir djúpstæðum vonbrigðum með skýrsluna og þá er bara skáldað í eyðurnar. Skýrsla sem kemur út eftir hádegi á föstudegi, rétt eftir að umræðu lýkur hér um viðræður um aðild Íslands að ESB, er ekki draumaskýrsla hæstv. ráðherra. Ég leyfi mér að fullyrða það. Við verðum að ræða framgöngu hæstv. ráðherra, eins og ég nefndi hér í byrjun; ráðherra sem hefur fullyrt að niðurstöður skýrslunnar sýni fram á, með leyfi forseta, „að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli“.
Þessi fullyrðing og útlegging hæstv. ráðherra hefur orðið þess valdandi að einn höfunda skýrslunnar hefur séð sig knúna til að leiðrétta hæstv. ráðherra. Þannig hefur Hilde Bjørnland, einn höfunda, bent á að kostnaður við krónuna og mögulegir kostir við upptöku evru hafi ekki verið vegnir saman. Ekki hafa verið lagt mat á það hvort kostir evrunnar myndu vega upp á móti því að bankinn missi úrræði sem fylgja sjálfstæðri peningastefnu. Í samtali við Morgunblaðið áréttar hún að þau hafi ekki borið saman hvort, með leyfi forseta, þessir kostnaðarliðir í heild vegi þyngra en ávinningurinn. Í Kastljóssviðtali við Catherine Mann, sem stýrði ritun skýrslunnar, kom fram að skýrslan sem við ræðum hér hafi ekki einu sinni átti að leiða fram niðurstöðu, sem hæstv. ráðherra hefur þó fullyrt að hún geri. Höfundar skýrslunnar hafi, með leyfi forseta, alls ekki átt að komast að niðurstöðu. Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði, skrifaði sömuleiðis um það í Morgunblaðinu að skýrslan taki enga afstöðu til þess hvort hagstæðara sé fyrir Ísland að halda krónunni eða velja evruna. Kostum og göllum sé lýst fyrir báða valkosti. Hann er einn fárra Íslendinga sem hafa lesið þessa 220 blaðsíðna skýrslu. Aðrir ættu a.m.k. að blaða í henni því ekki er hægt að treysta útleggingum hæstv. ráðherra.
Virðulegi forseti. Mig langar að benda á það hér að hæstv. ráðherrar Viðreisnar hafa viðrað áhyggjur sínar af upplýsingaóreiðu í tengslum við ákvörðun þjóðarinnar um viðræður um aðild Íslands að ESB, ekki síst af erlendum afskiptum. Mér virðist nú að helstu áhyggjurnar sem við þurfum að hafa séu af hæstv. ráðherrum í ríkisstjórn Íslands sem setja sannleikann ekkert fyrir sig í sínum áróðri og baráttu fyrir því að Ísland gangi í ESB. Og ég spyr, virðulegi forseti: Er mönnum ekkert heilagt, mönnum sem hafa unnið hér sem fræðimenn árum saman við ágætan orðstír? Er öllu fórnandi í tilrauninni til að koma Íslandi inn í Evrópusambandið?
Virðulegi forseti. Það er umfram allt mikilvægt að hæstv. ráðherra dragi til baka þessar fullyrðingar varðandi skýrsluna sem hann pantaði; að hann leiðrétti fréttatilkynningu frá ráðuneyti sínu sem er röng. Eða bíður hæstv. ráðherra eftir því að þessir tveir skýrsluhöfundar sem eftir eru tjái sig einnig um rangfærslur hæstv. ráðherra, eða hvað þarf til? Réttlæting hæstv. ráðherra hér í framsögunni er út í hött. Hann hefur bæði gefið út og talað um niðurstöður skýrslunnar sem er ekki að finna þar og höfundar skýrslunnar hafa andmælt.
Þá fyrst eftir að leiðrétting kemur fram frá hæstv. ráðherra getum við farið að ræða það sem er óumdeilt varðandi skýrsluna; að óháð því hvaða myntfyrirkomulag Íslendingar velja er nauðsynlegt að gera hér verulegar umbætur og kerfisbreytingar til að ná hér fram verðstöðugleika og gengisstöðugleika og þannig lægri vöxtum. Þar hefur vinnumarkaðurinn verið nefndur einna helst. Annað sem við getum nefnt í þessu samhengi er húsnæðismarkaðurinn, eins og seðlabankastjóri hefur svo ítrekað bent á. Þar bera þeir höfuðábyrgð sem hafa stýrt Reykjavíkurborg áratugum saman og rekið þar gjaldþrota húsnæðisstefnu.
Að lokum langar mig að beina þeirri spurningu til hæstv. ráðherra og vona að hann taki hana niður: Telur hann rétt að álykta um allan útflutning Íslands og áhrif gengis á hann út frá tveimur völdum útflutningsgreinum sem eru samanlagt þriðjungur alls útflutnings?