Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Herra forseti. Við erum hér að ræða nýja skýrslu. Það er rétt að þakka fyrir nýja skýrslu en hún er viðbót við fyrri greiningar m.a. Seðlabankans og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á kostum og göllum þess að halda í íslensku krónuna, minnsta fljótandi gjaldmiðil í heimi. Mér þykir miður að skýrslan sé ekki birt á íslensku, a.m.k. hef ég ekki séð hana og ég vona svo sannarlega, vegna mikilvægis hennar og þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu sem er nú síðar í sumar, að það verði bætt úr þannig að þeir sem hafa áhuga á að lesa hana á móðurmálinu geti auðveldlega gert það. Það væri t.d. miklum mun auðveldara fyrir mig að gera það. Ég er ekki vanur að lesa langar skýrslur um hagfræðileg málefni og hvað þá á ensku.
Skýrslan er í samræmi við það sem fyrri skýrslur hafa verið, það eru kostir og gallar. Það fyrsta sem stendur upp úr við lestur skýrslunnar er að hún býður ekki upp á einföld svör. Farið er yfir kosti og galla þess að Íslendingar taki upp evru en það verður auðvitað ekki gert með góðu móti nema með því að ganga í Evrópusambandið eða þá í náinni samvinnu við Evrópusambandið. Það yrði auðvitað engin töfralausn á öllum þeim áskorunum sem íslenskt efnahagslíf stendur frammi fyrir, ekki frekar en að það sé einhver töfralausn fyrir Evrópu að hafa evruna. En það myndu verða hér breyttar áskoranir og við þyrftum þá að bregðast öðruvísi við þegar það koma upp áföll.
Umræðan um gjaldeyrismálin litast núna, eins og hefur komið fram í ræðum hv. þingmanna, mjög af þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem stendur fyrir dyrum síðar í sumar, þ.e. hvort það eigi að taka upp viðræður eður ei um inngöngu landsins í Evrópusambandið. Síðan litast hún auðvitað líka, herra forseti, af stórkarlalegri vaxtastefnu Seðlabankans sem hefur áhrif á umræðuna. Seðlabankinn reynir nú að kveða niður erlendar kostnaðarhækkanir, m.a. á olíu, með því að hækka vexti á öll heimili og fyrirtæki í landinu. Þessi fáránleiki hefur orðið til þess að fleiri horfa til upptöku evru til að losna undan vaxtaokrinu, sem að öllum líkindum er farið að bíta í skottið á sér. Þeir sem eru mjög fylgjandi inngöngu Íslands í Evrópusambandið lýsa upptöku evrunnar gjarnan sem stóru lausninni, lausninni á öllu og öllum vanda og bara flestu því sem miður fer í íslensku efnahagslífi en minnast lítið á gallana. Á sama tíma gera andstæðingar inngöngunnar lítið úr augljósum kostum þess að taka upp evruna og ýkja mjög gallana við að taka upp evruna.
Flokkur fólksins er ekki fylgjandi inngöngu í Evrópubandalagið af margvíslegum ástæðum, m.a. á þeim forsendum að skynsamlegra sé að beita pólitískum kröftum til að breyta strax því sem skynsamlegt er að breyta á Íslandi, þ.e. að við séum að verja kröftunum í það sem gerir almenningi lífið auðveldara í stað þess að verja hér kröftunum í Evrópumálin. Það er okkar forgangsröðun og það er ágætt að það komi fram. Síðan er það auðvitað líka að sjálfstæði Íslendinga skiptir máli. Þetta snýst ekkert alltaf um krónur og aura. Ef maður fer yfir anda Hávamála, sem höfðar mjög til þjóðarsálarinnar, þá er sælla að eiga lítið og vera sjálfstæður heldur en að vera undir aðra kominn. Þetta er í þjóðareðlinu og við í Flokki fólksins viðurkennum það.
Herra forseti. Gjaldmiðill er fyrst og fremst ávísun á verðmæti. Það verða engin verðmæti sjálfkrafa til við það eitt að taka upp aðra mynt. Það er aftur á móti ekki hægt að líta fram hjá því að íslenska krónan hefur haldið illa í verðgildi sitt í gegnum áratugina. Það er auðvitað ekki vegna þess að krónan sé gölluð heldur miklu frekar að efnahagsstjórnin í gegnum tíðina hefur verið misráðin. Upptaka evru mun að öllum líkindum lækka viðskiptakostnað, vexti, auðvelda inngöngu erlendra aðila inn á íslenskan markað og þar með auka samkeppnina. Flestir þessir þættir eru mjög jákvæðir fyrir almenna neytendur en myndu setja þrýsting á þá sem eru fyrir á fleti í íslensku atvinnulífi um að gera betur. Það eru jákvæðir þættir. En það eru auðvitað fleiri þættir sem eru jákvæðir. Þetta dregur úr þörfinni fyrir að hafa digra gjaldeyrisvarasjóði í Seðlabankanum og myndi að því leytinu vera jákvætt. En síðan er auðvitað verið að ræða kostina og gallana og þá held ég að það sé augljóst að upptaka evru hafi ekki mikið að segja fyrir helstu vöruútflutningsatvinnugreinar landsmanna. Þá á ég við sjávarútveginn og álframleiðsluna. Álframleiðslan ræðst af því sem erlendir markaðir gefa og síðan er ýmis kostnaður sem vegur þungt. Hann ræðst af því hvað álverðið er hátt, og þá á ég við rafmagnið.
Sama á við um sjávarútveginn. Sjávarútvegurinn fær greitt, hann selur sína vöru 98% á erlenda markaði a.m.k., og það kemur inn erlendur gjaldeyrir. Og síðan taka íslenskir sjómenn þátt í gengisáhættunni vegna þess að hlutaskiptakerfið ræðst af því sem fiskurinn gefur á erlendum mörkuðum eða á a.m.k. að gera það. Það er eitt af þeim atriðum sem Flokkur fólksins vill bæta úr í íslensku samfélagi, að það verði meira gagnsæi hvað varðar verðmyndun á fiski. Þetta er eitthvað sem ég tel að skipti miklu máli og myndi gera hér þjóðlífið betra. En hér er vaxandi atvinnuvegur sem myndi örugglega fá bættan hag af því að taka upp evru. Ég held að það sé augljóst að hagur ferðaþjónustunnar myndi batna. Það myndi lækka vaxtakostnað og síðan myndi gengisáhætta minnka. Menn eru að selja hér ferðir eitt, tvö ár fram í tímann þannig að það gæti verið jákvætt fyrir þá atvinnugrein og mjög til góða. Eins tel ég að það myndi verða meira gagnsæi í verðlagi fyrir erlenda ferðamenn og almennt jákvætt fyrir þá atvinnugrein. Minni vaxtakostnaður, sem ég tel að hljótist, tel ég að muni frekar verða við núverandi aðstæður til þess að hækka verð á húsnæði, sérstaklega þegar umframeftirspurn ríkir. En á móti kemur þá mun það að öllum líkindum lækka byggingarkostnað þannig að þetta mun að einhverju leyti ná saman. Fljótt á litið finnst mér ekki ólíklegt að þetta gæti hækkað húsnæðiskostnað við núverandi aðstæður. Lækkun vaxta með upptöku evru gæti einnig haft áhrif á lífeyrissjóðina. Núverandi vaxtastig, sem er mjög hátt, hefur auðvitað jákvæð áhrif á afkomu lífeyrissjóðanna. Ég tel jafnvel að það þyrfti að skoða þann þátt sérstaklega ef menn ætla að fara þessa leið. En á móti kemur þá er það vaxtastig sem er núna áhættusamt og það gæti mögulega, með skynsamlegri vaxtastefnu, lægri vöxtum, hvort sem það er af völdum evru eða betri hagstjórnar á Íslandi, jafnað hér sveiflur þannig að sú ávöxtun sem lífeyrissjóðirnir eru að reikna sér væri raunverulegri.
Upptaka evru myndi augljóslega gera auknar kröfur til hagstjórnar. Þjóðin byggi ekki lengur við sjálfstæða peningastefnu en að sama skapi yrðu lægri vextir á skuldum ríkissjóðs til lengri tíma litið. Evran kallar á nýjar aðferðir til að bregðast við skyndilegum áföllum í efnahagslífi þar sem gengissig yrði úr sögunni. Það þyrfti því að beita öðrum aðferðum og víðtækari. Það kallaði jafnvel á launalækkanir, ef það eru skattbreytingar þá væru það skattahækkanir, og sársaukafyllri niðurskurð, þ.e. í stað þess að láta gengið síga þá þyrfti raunverulega að verða skerðing á framlögum eða, ef maður horfir á það, yrðu aðferðirnar beinskeyttari. Kannski yrðu þær jafn sársaukafullar þegar upp er staðið en það yrðu beinskeyttari aðferðir en við erum að nota núna. Eins og ég minntist á hér fyrr í ræðu minni er gjaldmiðillinn ekki að búa til verðmætin þannig að ef það eru minni verðmæti til skiptanna, mögulega vegna einhverra áfalla eða ef það þyrfti að stoppa í eitthvert gat vegna náttúruhamfara, þá þyrfti hið opinbera að bregðast við með víðtækari hætti en nú er gert.
En svona í lokin á þessari ræðu minni þá vil ég taka það fram að afkoma íslensku þjóðarinnar ræðst ekki endilega af því hvort við séum að skipta um gjaldmiðil. Ég held að það séu aðrir þættir sem við verðum að minna á. Það er menning þjóðarinnar. Það er ráðdeild, vinnusemi. Það er það sem skiptir máli þegar upp er staðið. Gjaldmiðillinn hefur ákveðna kosti, að halda í krónuna, en þetta er kostnaðarsamt og er minnsti fljótandi gjaldmiðill í heimi þannig að þegar upp er staðið þá höfum við kosti og galla. En við eigum ekki síður hér í þessum sal að hugsa um ráðdeild og vinnumenninguna og gera betur með það sem við höfum.