157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[14:13]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil nú byrja á því í upphafi ræðu minnar að taka undir orð hv. þm. Bergþórs Ólasonar að það er ánægjulegt að heyra að hér kveður við annan tón í málflutningi fjármála- og efnahagsráðherra varðandi þessa skýrslu en var kannski í upphafi og það er vel. Það er mikilvægt að við vöndum okkur, sérstaklega við sem erum hér í ábyrgðarstöðum í samfélaginu, hvernig við tölum um skýrslu eins og þessa. Það er ábyrgðarhluti að réttar upplýsingar komi fram og að þeim sé miðlað á réttan hátt.

Skýrslan um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum er áhugaverð. Hún inniheldur margar gagnlegar greiningar. Það er réttilega bent á að krónan geti aukið fjármagnskostnað og geti búið til gengisáhættu. Hins vegar dregur skýrslan of víðtækar ályktanir af þeim gögnum sem hún byggir á og það er alvarlegur ágalli — hvort hún hafi í raun og veru gefið nægilegt vægi þeim þáttum sem tala fyrir sjálfstæðum gjaldmiðli.

Í fyrsta lagi er samanburðarhópurinn í greiningunni ekki heppilegur. Það eru hin Norðurlöndin fyrir utan Noreg. Í svona greiningu þarf að bera saman hagkerfi sem hafa sömu eiginleika í grunninn. Ísland er auðlindahagkerfi, líkt og Noregur og Nýja-Sjáland, og í slíkum hagkerfum eru sveiflur algengari. Fullyrt er í greiningunni að krónan sveiflist mun meira en aðrir gjaldmiðlar á Norðurlöndunum en ef málið er skoðað betur og litið á tímabilið frá 2012 þá er lítill munur á sveiflum íslensku krónunnar og þeirrar norsku.

Í öðru lagi byggist stór hluti greiningarinnar á tímabilinu í kringum fjármálahrunið 2008. Það voru vissulega fordæmalaus ár en Ísland í dag er ekki sama hagkerfi og þá. Eftir hrunið hafa verið gerðar umfangsmiklar breytingar á stofnanaumgjörð peningastefnunnar. Seðlabankinn hefur verið styrktur, þjóðhagsvarúðartæki tekin upp, slitabú bankanna gerð upp og gjaldeyrismarkaður starfar nú við allt aðrar aðstæður. Þá vaknar sú spurning hvort skýrslan leggi of mikla áherslu á sögulegt tímabil sem endurspeglar ekki núverandi veikleika.

Í þriðja lagi virðist skýrslan ekki taka nægilegt tillit til þeirra búhnykkja og áfalla sem Ísland hefur orðið fyrir. Ferðaþjónustan jókst um 100% á fáeinum árum og leiddi eðlilega til styrkingar krónunnar. Í heimsfaraldrinum varð Ísland fyrir mun stærra höggi en flest önnur Norðurlönd vegna mikillar þýðingar ferðaþjónustu fyrir útflutning. Þegar útflutningur fellur um tugi prósenta skiptir máli að hagkerfið hafi aðlögunarleiðir. Þar hefur sveigjanlegt gengi gegnt mikilvægu hlutverki og þjónað íslensku hagkerfi vel.

Í fjórða lagi er mikilvægt að hafa í huga að skýrslan mælir ekki beint og ekki skýrt með upptöku evru. Höfundarnir sjálfir hafa bent á að verkefnið hafi ekki verið að komast að niðurstöðu um hvaða gjaldmiðill sé bestur fyrir Ísland. Markmiðið var að greina ákveðna þætti í gjaldeyrismálum. Þess vegna er ekki hægt að líta á skýrsluna sem endanlegt svar við spurningunni um evruaðild eða upptöku evrunnar.

Að lokum: Seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri hafa gert margar athugasemdir við skýrsluna og komið hefur fram að bankinn hafi gert skriflegar athugasemdir. Í ljósi þess óskar sá sem hér stendur eftir því að fjármála- og efnahagsráðherra birti skriflegar athugasemdir Seðlabanka Íslands. Einnig óska ég eftir því að skýrslan verði þýdd á íslensku til þess að auka gagnsæi.

Virðulegur forseti. Það er miður að ekki hafi verið vandað betur til verka og að það séu verulegir ágallar á skýrslunni. Enn verra er að fjármálaráðherra kynni niðurstöðu skýrslu sem er ekki að finna í skýrslunni. Þetta er alvarlegt, virðulegur forseti, og því fagna ég því að það sé kominn mildari tónn í hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Ég held að það sé mikilvægt að hæstv. ráðherra leiðrétti fréttatilkynningu ráðuneytis síns og komi þar með í veg fyrir frekari upplýsingaóreiðu.