Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þá umræðu sem hér fer fram um skýrslu sem rituð var að beiðni hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Daða Más Kristóferssonar, um gjaldmiðlamál. Skýrslan ber heiti á ensku, með leyfi forseta, A Report on 'Currency Matters' for the Iceland Ministry of Finance and Economic Affairs. Höfundar eru allir vel þekkt fólk á sínu fræðasviði. Það er mikilvægt að við ræðum um íslensku krónuna og þá möguleika sem við kynnum að hafa ef til þess kæmi að við vildum skipta um gjaldmiðil. Enginn annar augljós kostur er til staðar heldur en sá að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Engin leið í gjaldeyrismálum íslensku þjóðarinnar er algerlega ágreiningslaus, enda er það svo að íslenska krónan hefur kosti og galla og það hefur evran einnig. Að mínu mati verður það aldrei annað en samkvæmisleikur að velta fyrir sér upptöku annars gjaldmiðils en evru í stað krónu. Lítið opið og útflutningsdrifið hagkerfi eins og það íslenska mun ekki geta verið með gjaldmiðil sem ekki er studdur af banka til þrautavara, þ.e. seðlabanka. Við höfum ákveðið að kjósa um það í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst næstkomandi hvort við hefjum á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í mínum huga eru mestu hagsmunirnir við það að vilja hefja aðildarviðræður á ný sá möguleiki að við getum í tímans rás tekið upp evru. Þeim sérfræðingum sem fengnir voru til þessa verkefnis, að fjalla um gjaldmiðlamálefni á Íslandi, var ekki falið að komast að niðurstöðu um hvernig þeim verði fyrir komið hér á landi, einvörðungu að meta kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils til samanburðar við það að vera hluti af stærra gjaldmiðilssamstarfi.
Við lestur skýrslunnar er tiltölulega auðvelt að komast að þeirri niðurstöðu að kostnaður við krónuna sé meiri en ábati og sá þáttur sem helst er haldið á lofti varðandi krónuna, þ.e. sveigjanleg gengisstefna, sé í raun veigaminni en haldið hefur verið fram. Ábatinn af upptöku evru getur leitt til þess að vextir verði lægri og þá ráðstöfunartekjur fólks og fyrirtækja meiri og aukin geta til fjárfestinga. Kostnaður fjármálakerfisins myndi lækka svo og viðskiptakostnaður, enda værum við þá hluti af mun stærri fjármálamarkaði auk hins augljósa, að við hefðum sama gjaldmiðil og mjög stór hluti þess markaðar sem við eigum viðskipti við. Áhættuálag myndi lækka og viðskipti aukast. Samkvæmt skýrslunni gætu viðskipti við útlönd aukist verulega eftir upptöku evru.
Í skýrslunni er komist að þeirri niðurstöðu að krónan sé ekki til þess fallin að stuðla að efnahagslegum stöðugleika nema í stóráföllum og að gengissveiflur hafi oft magnað efnahagsáföll fremur en dregið úr þeim. Með öðrum orðum, stóráföllin eru að einhverju leyti komin til vegna krónunnar. Krónan leiðir okkur í dýpri lægðir en ella en hjálpar síðan til við að koma lagi á hlutina sem gengur út á að heimilin og a.m.k. hluti atvinnulífsins borga brúsann, þ.e. með aukinni verðbólgu, lækkuðum raunlaunum og verðtryggð húsnæðislán hækka og verða hærra hlutfall af verðmæti eignanna. Sama gildir um skuldir fyrirtækja. Allt leiðir þetta til þess að skuldsett heimili og fyrirtæki taka skellinn. Stöðugleiki sem fæst með krónunni í stóráföllum minnir dálítið á að fá einn af brennuvörgunum sér til hjálpar við slökkvistarfið.
Í Kastljósi Ríkisútvarpsins síðastliðinn þriðjudag var viðtal við Catherine L. Mann, en hún er einn höfunda skýrslunnar sem við nú ræðum. Viðtalið er birt á vefsvæði RÚV og þar segir í kynningu á viðtalinu, með leyfi forseta:
„Skýrslan kom út fyrir helgi og var kynnt á opnum fundi á þriðjudag. Mann undirstrikar að hlutverk nefndarinnar hafi ekki verið að koma með meðmæli heldur aðeins greiningu. Hún segir helsta kost við evru vera aukinn stöðugleika. Hins vegar gæti upptaka evru verið krefjandi vegna íslenska vinnumarkaðsmódelsins.
Sumir hafa bent á sveigjanleika krónunnar sem helsta styrkleika hennar. Það stuðli að gengislækkunum þegar efnahagsáföll dynja yfir og vinni gegn atvinnuleysi til að mynda.
Mann telur að gengissveiflur krónunnar skili minni ávinningi fyrir atvinnu og útflutning en oft sé haldið fram, en að kostnaðurinn í formi verðbólgu, vaxta, áhættuálags og óstöðugleika sé viðvarandi og snerti allt hagkerfið.“
Að mínu mati er Catherine L. Mann töluvert afdráttarlaus í þessu viðtali um kosti evru umfram krónuna. Mig langar í þessu sambandi víkja að hluta viðtalsins við Catherine L. Mann þar sem hún er spurð hverju Íslendingar muni helst taka eftir og sjá ávinning af ef til þess kæmi að evra yrði tekin upp hér á landi. Catherine nefnir óstöðugleika, sem hún ræðir raunar nokkrum sinnum í viðtalinu, og þá staðreynd að fólki líki ekki að það geti ekki séð fyrir sér hvernig tekjur þess duga til reksturs heimilis og fyrirtækja, en upptaka evru myndi draga úr óstöðugleika, með öðrum orðum, leiða til stöðugleika. Óstöðugleiki kalli á áhættuálag á lán og gengi og í því samhengi myndi upptaka evru lækka vexti, lækka verðbólgu og lækka vexti á húsnæðislánum. Þetta er nú töluverður ávinningur, forseti, ávinningur sem almenningur myndi finna fyrir.
Með lestri skýrslu þeirrar sem við nú ræðum hefur vissa mín aukist til muna hvað varðar þann hag sem við hefðum af upptöku evru hér á landi. Það mun ekki gerast án þess að við göngum í Evrópusambandið. Til þess þurfum við að segja já í ágúst og sjá hvort aðrir þættir í samningi við Evrópusambandið geti orðið okkur nægilega hagfelldir til að við samþykkjum inngöngu í sambandið.