Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegur forseti. Hér kom hæstv. ráðherra í ríkisstjórn áðan og gaf í skyn að það hafi á einhvern hátt verið stjórnarandstaðan blessuð sem bjóst við svonefndum stóradómi af þessari fyrirhugaðri skýrslu. Það er ljóst að það var ekki stjórnarandstaðan sem bjóst við slíkum stóradómi heldur mun frekar sá hluti ríkisstjórnarinnar sem vill ganga inn í Evrópusambandið. Framsetningin einkenndist öll af slíkum ákafa að menn höfðu greinilega gert sér ákveðnar væntingar um efni skýrslunnar sem fengu ekki staðist en voru látnar virðast hafa staðist í þeirri framsetningu sem mátti sjá á vef Stjórnarráðsins. Ég hef gert athugasemdir við þessa framsetningu á vef Stjórnarráðsins og ég tel að ef menn vilja tryggja trúverðugleika hins opinbera í þessari umræðu og þeirra yfirlýsinga sem þaðan koma, vegna þess að það er alvarlegt mál ef sá trúverðugleiki rýrnar mjög, þá ættu menn að sjá sóma sinn í að leiðrétta þær ályktanir sem dregnar eru af skýrslunni í fréttatilkynningu Stjórnarráðsins.
Það er ekki það sama að skýrslan taki fram þá augljósu staðreynd að í venjulegu árferði sé ákveðinn kostnaður af því að hafa smærri mynt. Það er ekki það sama að sú staðreynd sé tekin fram hérna og að það þýði að kostnaðurinn sé meiri en ábatinn af íslensku krónunni, líklega, eins og það er orðað. Það er einfaldlega staðreynd lífsins; að vera með smærri mynt felur í sér ákveðinn fórnarkostnað, eins og tekið er fram þarna, í venjulegu árferði en þegar þú horfir á heildarávinninginn af því að hafa sjálfstæða mynt þá kemur inn möguleiki myntarinnar til að styðja við hagkerfið í áföllum. Þegar þú tekur áföllin út fyrir sviga þá augljóslega ertu kominn í útreikning sem hreinlega á ekki við og er algerlega gagnslaus. Það var beinlínis röng fullyrðing sem var dregin af þessari lýsingu í skýrslunni.
Það er mikilvægt að hafa í huga í þessu sambandi að evran er ekki sett fram upphaflega til þess endilega að auka efnahagslega velsæld innan Evrópusambandsins heldur einfaldlega til að flýta fyrir samruna í kerfinu. Ég held að þeir hagfræðingar séu vandfundnir sem segja að markmið evrunnar sé endilega að auka hagvöxt í Evrópu. Menn vita einfaldlega að það er kostnaður á móti sem kemur í formi atvinnuleysis og ég fæ væntanlega tækifæri hérna eftir stutta stund til að víkja að því hvernig hæstv. fjármálaráðherra hefur rætt um atvinnuleysið. Í grunninn er það í fljótu bragði ljóst að það sé ekkert aðkallandi í reynslu síðustu áratuga sem hvetji til þess að Íslendingar taki upp evruna. Við erum með þessi þrjú ríki sem hafa skarað fram úr að mörgu leyti og þau eru evrulaus, Noregur, Sviss og Ísland, og svo mætti lengi telja áfram.
Ég vildi rétt víkja að ummælum hæstv. fjármálaráðherra um atvinnuleysið sem hann segir að sé í sjálfu sér, samkvæmt áhugaverðu viðtali í Morgunblaðinu, ekkert stórmál þegar við erum með þennan hreyfanleika í vinnuaflinu. Það er áhugavert að þetta hefur fengið gagnrýni úr röðum verkalýðshreyfingarinnar frá Höllu Gunnarsdóttur og svo er auðvitað Sólveig Anna Jónsdóttir í Eflingu sem stígur fram gegn Evrópusambandinu og talar um að það sé ekki hagur verkalýðsins að vera hreyfanlegur eins og hagsmunum atvinnurekanda hentar hverju sinni. Þetta er mjög athyglisverð umræða til að koma inn á og það má benda hæstv. fjármálaráðherra á að þegar menn hafa væntingar um að atvinnuleysið leysi sig sjálft með því að útlendingarnir flytji heim eða aftur til baka þá hefur það því miður ekki alveg verið raunin hér á Íslandi, t.d. þar sem nettóinnflutningur hefur verið töluvert yfir meðaltali á öldinni þrátt fyrir hækkandi atvinnuleysi. Þannig að þessar spár eru ekki að rætast. Að fara enn lengra inn í svona kerfi út frá hagsmunum alls almennings er að miklu leyti mjög áhugaverð umræða. Ég nefni stundum í því samhengi að þegar við erum að tala um framtíðarþróun lýðfræðinnar hérna á Íslandi að Ísland er ekki efnahagssvæði eitt og sér (Forseti hringir.) eða bara efnahagssvæði heldur er það þjóðríki og þar búa Íslendingar almennt. Það er ekki bara hægt að skipta fólki út eins og einhverjum útskiptanlegum einingum. En ég kemst víst ekki lengra í bili.