157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[14:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir að hafa frumkvæði að þessari umræðu og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í henni. Ég vek athygli á því að við erum að ræða þetta núna. Ríkisstjórnin réði nákvæmlega hver gerði þessa skýrslu, hvert uppleggið væri og hvenær hún yrði birt. Við erum ekki að ræða þetta í aðdraganda atkvæðagreiðslu eða í umræðu um það hvort við eigum að setja í þjóðaratkvæði að halda áfram aðlögunarviðræðunum við Evrópusambandið. Við erum að gera þetta á eftir. Við vitum það, og ég ætla ekki að endurtaka það sem hv. þingmenn hafa sagt hér, að það voru gerð mistök. Hæstv. ráðherra gerði mistök. Það er allt í lagi. Það er mannlegt að gera mistök en trúverðugleiki hæstv. ráðherra veltur á því hvernig hann mun bregðast við þessum mistökum sem hann gerði þegar hann kynnti niðurstöður skýrslunnar. Ef hæstv. ráðherra vill viðhalda sínum trúverðugleika biður hæstv. ráðherra þjóðina afsökunar á því og leiðréttir þau mistök sem voru gerð. Ef hann gerir það ekki þá er hann að draga úr trúverðugleika sínum sem og ríkisstjórnarinnar. Og enn og aftur þegar við erum að tala hér um upplýsingaóreiðu, að afvegaleiða umræðuna og falsfréttir, þá erum við á þeim stað að ríkisstjórnin er að standa fyrir slíku. Ég ætla ekkert að velja úr orðin hér. Nú skiptir máli hvernig hæstv. ráðherra mun bregðast við. Það er alveg rétt sem hefur komið fram að tónn hæstv. ráðherra var allur annar og betri en þetta er af þeirri stærðargráðu að maður hlýtur að spyrja þeirrar eðlilegu spurningar hvort hér muni ekki koma afsökunarbeiðni frá hæstv. ráðherra.

Það er auðvitað gott að gera skýrslur og ég tek undir að það væri ekki verra ef hún væri á íslensku og ef dregnir yrðu upp þeir þættir sem eru réttir í þessari skýrslu, þ.e. hvað stendur í henni. Galli hennar liggur í því, eins og komið hefur fram, að hún er að tala um krónu sem var. Hún er að tala um fyrirkomulag sem var fyrir fjármálahrunið. Það kemur fram, og við vitum það, að það er rangt að krónan sé eitthvað meiri sveiflukenndari heldur en það sem við getum borið okkur saman við. Það er líka rangt að sveiflur í fjármagnsflæði séu eitthvað sérstaklega miklar. Við vitum hins vegar að það eru margir gallar á krónunni, og ég fer aðeins yfir þá á eftir, en það kemur líka ekki fram í skýrslunni þegar menn tala um útflutningsviðskipti að 45% af útflutningsviðskiptum okkar eru í dollurum, 40% eru í evrum. Það er ekki minnst á það í skýrslunni. Ef menn ætla í alvöru að velta því fyrir sér að skipta um gjaldmiðil eða breyta einhverju fyrirkomulagi mála þá hljóta menn að tala út frá þeim staðreyndum.

Ég verð, virðulegi forseti, að segja að mér finnst hv. stjórnarliðar sem myndu styðja að fara inn í Evrópusambandið alveg sama hvað felst í þessari skýrslu — mér finnst það vanvirðing hvernig er talað til launafólks. Við vitum að við höfum verið að taka okkur of mikil laun miðað við verðmætasköpun. Það er bara staðreynd. En þegar menn segja hér að vinnumarkaðurinn eigi að taka á sig meiri sveiflujöfnun, eins og það sé ekkert mál, hvað er fólk að segja? Það er að segja að þegar eitthvað gerist þá bara hækkar atvinnuleysið, eins og það sé ekkert mál vegna þess að fólk geti þá flutt til annarra landa og unnið þar. Mér finnst fólk tala svolítið um þetta eins og almenningur og launþegar séu sauðfé, þú rekur það bara í einhvern annan afrétt ef afrétturinn sem nú er virkar ekki. Það er stórmál fyrir fólk að flytja frá Íslandi til að sækja vinnu. Það er ekkert lítið mál. Ég bið menn að tala af meiri virðingu um fólkið í landinu þegar þeir eru að ræða þessi mál.

Ég vil líka vekja athygli á því, þar sem það er ekkert að því vikið, að evran var ekki sett fram til þess að auka verðmætasköpun í ESB. Það var ekki gert. Þetta var til þess að ýta undir pólitískan samruna. Ef menn hefðu ætlað að gera það með þeim hætti að leggja áherslu á efnahagsmálin þá hefðu menn farið aðrar leiðir og byrjað örugglega á þeim ríkjum sem ættu auðveldast með það að vera saman í myntbandalaginu. Reyndar var það þannig að þegar evran var sett á laggirnar þá jók það ekki viðskipti milli evrulandanna, jafn skrýtið og það er, þvert á það, menn héldu að það væri kostur. Síðan er það þannig, virðulegur forseti, að það hafa verið krísur í Evrópusambandinu, m.a. evrukrísur. Það liggur alveg fyrir að það eru þeir veikleikar sem ollu evrukrísum sem hefur ekki verið tekið á, það hefur ekki verið klárað. (Forseti hringir.) Menn geta fundið þetta í hinum ýmsu skýrslum og ritum þar um.

Virðulegi forseti. Ef menn vilja í alvöru skoða hvað betur má fara (Forseti hringir.) þá gera menn það en að taka upp hvert einasta plagg sem kemur og reyna að leggja það út að þetta sé leiðin inn í Evrópusambandið og eina leiðin (Forseti hringir.) er ekki trúverðugt og það er alvarlegt að við séum með ríkisstjórn í landinu sem leggur öll mál út með þeim hætti.