Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Frú forseti. Við ræðum hér skýrslu óháðra sérfræðinga um valkosti í gjaldmiðlamálum. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir hans yfirferð sem og öðrum sem hér hafa tekið til máls og hafa deilt sinni sýn á skýrsluna og málefnið sem til umfjöllunar er.
Forseti. Það var viðbúið að skýrsla þessi myndi vekja viðbrögð. Það var sömuleiðis nokkuð fyrirséð hver viðbrögðin yrðu. Gagnrýni á skýrsluna hefur í opinberri umræðu einkum varðað fjögur atriði; framsetningu fjármálaráðuneytisins á skýrslunni, hvað skýrslan fjallaði ekki um, að tilteknir kostir krónunnar hafi verið vanmetnir og að lokum að gallar evrunnar hafi ekki verið metnir. Ég ætla í þessari ræðu minni að halda mig við staðreyndir og aðalatriði. Það er staðreynd að sá kostnaður sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli er meiri en sá hagur sem til þessa hefur verið talið að fylgi honum. Það er staðreynd að skýrslan sýnir fram á að krónan er ekki sá sveiflujafnari sem haldið hefur verið fram. Ýmsir hafa bent á að íslenska krónan hafi náð einhvers konar jafnvægi gagnvart öðrum gjaldmiðlum síðasta áratug eða svo. Til að svo mætti vera þurfti í fyrsta lagi að setja á gjaldeyrishöft og í öðru lagi þurfti að byggja hér á landi upp varasjóð sem nemur um fimmtungi landsframleiðslunnar. Í stuttu máli þá greiðum við öll, ríki, atvinnulíf og almenningur, af hendi gríðarlegt fé til þess eins að geta viðhaldið hér einhvers konar jafnvægi í verðmæti á þeim gjaldmiðli sem við notum.
Forseti. Hlálegust allra röksemda gegn því að taka upp hér á landi nýjan gjaldmiðil er sá málflutningur að mínu mati að því myndu fylgja aðgerðir sem væru krefjandi og að við þyrftum hvort eð er að ráðast í slíkar aðgerðir. Ég hef engan heyrt segja fyrr né síðar að upptaka evru myndi ein og sér laga hér alla hluti og að með henni hyrfi þörfin á innlendri hagstjórn, engan. Það er flestum orðið ljóst að víða gætu kerfin okkar orðið betri, jafnvel miklu betri.
Forseti. Það er kominn tími til að við viðurkennum þær staðreyndir sem við blasa. Ef við ímyndum okkur þær aðstæður að við gætum hér hafið upptöku evru án allra annarra skuldbindinga sem fylgja fullri aðild að Evrópusambandinu þá værum við hér að ræða eingöngu um efni þessarar skýrslu en ekki form hennar, hver gerði hana eða hvernig hún væri kynnt. Við værum einfaldlega að ræða hvaða skref við þyrftum að stíga til að taka upp nýjan gjaldmiðil. Það er staðreynd, forseti, að þeir kostir sem myndu fylgja upptöku evru hér á landi eru óumdeilanlegir. Það er sömuleiðis staðreynd, forseti, að kostir þess að halda í krónu eru mjög umdeilanlegir, svo það sé kurteislega orðað.
Áður en ég lýk máli mínu vil ég, með leyfi forseta, vitna til orða seðlabankastjóra eins og þau voru tilvitnuð í frétt Morgunblaðsins þriðjudaginn síðasta:
„Hins vegar er það náttúrulega þannig að evran hefur mjög jákvæð áhrif í för með sér. Hún myndi fela í sér meiri viðskipti, aukna samkeppni og það koma mjög jákvæð áhrif af samþættingu. Hún myndi auka seljanleika á markaði, væntanlega lækka áhættuálög o.s.frv.“
Forseti. Það er okkar stjórnmálamanna að vinna með þau verkfæri sem almenningur treystir okkur fyrir. Velji almenningur að við skoðum til hlítar kosti þess að ganga í Evrópusambandið ber okkur að sjá til þess að hann hafi þær forsendur sem sannar eru. Aðild að Evrópusambandinu fylgja skuldbindingar og þær eigum við að ræða en kostir þess að taka upp nýjan gjaldmiðil eru skýrir og mjög veigamiklir.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu.