157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[14:46]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Hér í þingsal vildu hæstv. ráðherrar ekki mæta í umræðuna um Evrópusambandið enda vildu þeir keyra umræðuna í gegn svo hægt væri að halda því fram að Íslendingar gætu kíkt í einhvern pakka þar sem væri hægt að velja úr varanlegum undanþágum frá stofnsáttmála Evrópusambandsins. Alls ekki mátti ræða hvað Evrópusambandið er því, jú, Evrópusambandið er bara það sem Evrópusambandið er. ETS-loftslagsskattaruglið er eitt skýrt dæmi um það þar sem okkur var lofað undanþágum. En hvað kemur í ljós? Þær voru auðvitað bara tímabundnar. Hæstv. ráðherrar komu helst upp í pontu til að hafa áhyggjur af falsfréttum en bentu þó ekki á neitt fals. En hvað kemur í ljós? Einu falsfréttirnar koma frá ríkisstjórninni sjálfri og af nógu er að taka enda virðist ekki eiga að treysta þjóðinni fyrir staðreyndum.

Hæstv. fjármálaráðherra hélt því fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins að mat skýrsluhöfunda væri að það væri mjög vænlegur kostur fyrir Ísland að taka upp evru ef við veljum að ganga í Evrópusambandið. Svo sagði hæstv. ráðherra líka að eina leiðin til að taka upp evru væri að ganga í ESB. Ég giska á að lönd eins og Kosovo, Andorra, Mónakó og fleiri myndu mótmæla þessum orðum ráðherra. Nú hafa margir hrakið þessar staðreyndir. Ætlar hæstv. ráðherra að standa við þessar staðhæfingar og getur hæstv. ráðherra viðurkennt að hann hafi einfaldlega farið með rangt mál? Ég geri ráð fyrir að það hafi ekki verið vísvitandi en fyrir faglega umræðu væri gott að leiðrétting bærist.

Einnig langar mig að spyrja: Af hverju var skýrslan ekki birt fyrr en degi eftir að umræðum um aðildarviðræður lauk hér í þinginu þann 29. maí en skýrslan var tilbúin 13. maí? Hentaði niðurstaðan kannski ekki umræðunni? Fyrst hæstv. ráðherra kom inn á í ræðu sinni að það þyrfti minni gjaldeyrisvaraforða ef við færum inn í Evrópusambandið og tækjum upp evru, þá langar mig að spyrja ráðherra: Miðað við núverandi aðstæður, hvað telur hann — ég ætla bara að segja að þetta er eiginlega spurningin sem mig langar helst að fá svar við — að gæti verið raunhæft skiptigengi ef við tækjum upp evru? Þetta er eina svarið sem mig langar að fá ef hann þarf að velja úr. Þó að það væri langt í það þá hlýtur ráðherra að hafa velt því upp: Myndi evran kosta Íslendinga 200 kr.? Eða jafnvel meira? Er það ekki á ákveðinn hátt eignarýrnun fyrir almenning?

Fjölskylda sem ætlar að nýta 1 milljón í sumar til að fara í frí til Evrópu gæti í dag fengið sirka 7.000 evrur fyrir krónurnar sínar til að standa undir fríinu. Ef skiptigengi væri hins vegar 200 kr. fengjust sirka 5.000 evrur til að standa undir þessu sama fríi. Á hinn bóginn yrði þessi milljón að andvirði 700.000 eftir upptöku evru. Þeir sem þekkja til telja 200 kr. skiptigengi mjög bjartsýnt. Sama ætti auðvitað við um allan sparnað, hvort sem það er eigið fé í húsnæði eða öðru. Þeir sem eru búnir að spara og eignast kannski 10 milljónir í sínu húsnæði, það yrði kannski bara andvirði 7 milljóna ef við tækjum upp evru miðað við þessar forsendur. Hæstv. ráðherrar virðast alla vega ekki vilja ræða kosti og galla, einungis kostina. Önnur líkleg áhrif við upptöku evru yrði aukið atvinnuleysi, ungt fólk í stórum stíl á erfitt með að afla sér lífsviðurværis í Evrópusambandinu. 40% ungs fólks segist ekki ná endum saman og slæmar afleiðingar atvinnuleysis eru auðvitað margar. En það er alveg augljóst að ungt atvinnulaust fólk eignast ekki húsnæði. Þá skipta vextir engu máli ef tekjurnar eru engar. Þá eru ekki miklir möguleikar fyrir ungt fólk til að eignast húsnæði, enda mun fleiri í heimahúsum eða á leigumarkaði í Evrópusambandinu heldur en á Íslandi.