Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa mikilvægu skýrslu og þann grunn sem hún getur lagt að umræðunni en taka um leið aðeins skref til baka og spyrja: Af hverju erum við með gjaldmiðil yfirhöfuð? Þetta er ein af merkilegustu uppfinningum mannkyns, peningar, svipað merkilegt og uppfinningin borgir, hjólið, prentvélin, til þess að þurfa ekki að skiptast á fisksporðum og hangilærum heldur miðla því.
Ég tek eftir því í þessari umræðu að það lýsa ýmsir efasemdum um evruna en það er enginn að verja krónuna. Af hverju eru sjálfstæðir gjaldmiðlar til? Í fyrsta lagi til að geta skilgreint sjálfstæða vexti. Í öðru lagi til að nota gengi sem höggdeyfi og kannski í þriðja lagi að vera með lánveitanda til þrautavara til að standa að baki fjármálakerfinu. Ef við metum krónuna á þessum mælikvarða þá leiðir áhættuálagið á Íslandi og ýmsir aðrir þættir til miklu hærri vaxta.
Þessi skýrsla er svo mikilvægt innlegg í umræðuna um það sem lengi hefur verið haldið fram sem helsta kosti krónunnar, að gengið geti verið höggdeyfir vegna sérstöðu íslenska hagkerfisins. Það sem skýrslan leiðir í ljós er í fyrsta lagi að Ísland sker sig algerlega frá öðrum Norðurlöndum með meiri sveiflur, miklu meiri. Í öðru lagi: Sveiflurnar virðast að flestu leyti koma utan frá, úr alþjóðlegu fjármálaumhverfi utan frá. Í þriðja lagi: Þvert á það sem talsmenn krónunnar hafa haldið fram þá dempar krónan eiginlega aldrei sveiflurnar heldur magnar þær. Þess vegna er það mjög vægt til orða tekið, eins og fjármálaráðherra hefur sagt, að skýrslan leiði í ljós að kostnaðurinn við krónuna sé líklega meiri en ábatinn. Það er bara augljóst af niðurstöðum skýrslunnar að eitt meginhlutverk sjálfstæðs gjaldmiðils sem er að dempa sveiflu — krónan ýkir hana. Í fjórða lagi segir í skýrslunni að viðskipti gætu aukist frá 5–30%. Þetta er miklu hærra mat heldur en ég hef áður séð. Hagfræðistofnun skilaði svörum upp á 3–4% fyrir örfáum vikum. En vextirnir eru auðvitað kjarni málsins og útreikningar sýna að húsnæðisvextir á evrusvæðinu eru miklu lægri en hér á Íslandi. Það munar 3–4% í raunvöxtum og það eru 100 milljarðar á ári fyrir heimilin, 1.000 milljarðar á tíu árum, að meðaltali um milljón á hverja fjölskyldu og meira fyrir þær sem skulda meira.
Það er líka gríðarlegt hagsmunamál fyrir atvinnulífið að fá lægri vexti, fá þennan lægri viðskiptakostnað og fyrirsjáanleikann sem skiptir auðvitað heimilin líka máli. En þetta undirstrikar að stöðugur gjaldmiðill er mikið hagsmunamál fyrir íslenskt atvinnulíf. Alþjóðlegur gjaldmiðill er ekki bara stöðugur heldur lækkar hann þennan viðskiptakostnað.
Eitt af því sem slegið er föstu er að vextir muni lækka og stöðugleikinn aukast. Það sem við erum kannski svolítið föst með í huganum er að íslenska hagkerfið sé svo ólíkt fjölbreyttum hagkerfum Evrópu en greiningin leiðir í ljós að við eigum meira sameiginlegt eftir að íslenskt atvinnulíf varð fjölbreyttara heldur en áður og við sjáum það líka í alþjóðlegum samanburði að það eru einmitt lítil, opin hagkerfi sem hafa mesta hagsmuni af því að vera með stærri gjaldmiðil.
Eina dæmið sem er nefnt að geti nýst er að fella gengið þegar gríðarleg áföll dynja á. En hvað er raunverulega verið að tala um? Þá er verið að tala um að flytja kostnað af risaáföllum, með gengislækkun, yfir á heimilin í formi hærri verðbólgu, lægri launa, dýrari matarkörfu, dýrara bensíns og dýrari lána á meðan þeir sem hafa tekjur í erlendri mynt eða eignir í erlendri mynt geta keypt meira hér á landi fyrir það.
Skýrslan er gríðarlega mikilvægt innlegg, leggur traustan grunn. Það hefur verið fundið að því að hún sé ekki fyrir alla, 200 þéttskrifaðar síður um hagfræði. En þá langar mig að vitna í Guðmund Steingrímsson, fyrrverandi þingmann, sem kemst oft glettilega vel að orði. Hann sagði, með leyfi forseta:
„Króna eða evra. Svona horfir málið við mér: Við erum með ca. þúsund milljarða gjaldeyrisforða sem á að verja krónuna og halda henni stöðugri. Við erum með gjaldeyrishöft á lífeyrissjóðina, svo þeir fjárfesti ekki erlendis og veiki krónuna. Samt erum við með verðtryggingu (ein Evrópuþjóða). Og samt erum við með ca. 10% vexti á húsnæðislánum. Sem sagt: Við erum kirfilega með belti og axlarbönd. En við erum í engum buxum.“