157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[14:56]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Val á gjaldmiðli er meðal mikilvægustu efnahagslegu ákvarðana sem þjóð getur tekið og því er eðlilegt að málið sé rætt af yfirvegun og á grundvelli staðreynda. Þess vegna er sorglegt að heyra þegar hv. þingmenn koma fram, hvort sem það er hér eða á Facebook-síðum, og halda því fram að heimilin gætu grætt hundruð milljóna króna við upptöku evrunnar. Slíkar fullyrðingar eiga sér enga stoð í þeirri skýrslu sem um ræðir. Þær skapa væntingar sem hvorki skýrslan né sérfræðingar hafa staðfest og jafnvel fréttaflutningur stjórnvalda gaf á köflum einfaldari mynd af niðurstöðum en efni skýrslunnar gefur tilefni til.

Sannleikurinn er sá að bæði króna og evra hafa kosti og galla. Kostir evrunnar eru vel þekktir. Með stærri gjaldmiðli myndi gjaldeyrisáhætta minnka, viðskiptakostnaður við Evrópusambandið myndi lækka, reyndar ekki við Bandaríkin eða önnur ríki, og aðgangur að stærra fjármálasvæði, þ.e. Evrópusambandinu, myndi aukast. Það gæti stuðlað að aukinni samkeppni og lægri fjármagnskostnaði en það er engin forsenda fyrir því að hingað komi erlend fyrirtæki. Við skulum muna að hér getum við vel verslað í Zöru, H&M, Costco eða hvað annað það er, þannig að það er engin forsenda þess að hér ríki meiri samkeppni að ganga í Evrópusambandið. Þá hafa stjórnarliðar og sérstaklega Samfylkingin bent á glötuð tækifæri. Það gætu glatast einhver tækifæri við það að ganga ekki í Evrópusambandið. Er þá nýsköpun nefnd sérstaklega.

Virðulegur forseti. Mig langar að velta því upp hvort fyrirtæki eins og Delta og Actavis hefðu orðið til ef Ísland hefði verið í Evrópusambandinu um aldamótin. Ég held að svarið við því sé nei. Ísland er yfir meðaltali ESB í nýsköpun. Þar njótum við sannarlega ákveðins ávinnings af því að vera í EES. Nú getum við velt fyrir okkur kannski næstu stóru skrefum í nýsköpun, sem er gervigreindin. Ég held að það kunni að vera mikill kostur fyrir þróun gervigreindar á Íslandi að vera utan Evrópusambandsins.

Upptaka evru getur falið felur það í sér að Ísland afsali sér sjálfstæðri peningastefnu. Vaxtaákvarðanir eru teknar með hagsmuni evrusvæðisins í huga en ekki íslensks hagkerfis sérstaklega. Við munum ekki lengur hafa eigin gjaldmiðil til að bregðast við áföllum sem eingöngu snerta Ísland og, virðulegur forseti, þá er áhugavert að líta til fréttar í Morgunblaðinu þar sem vitnað er til Hilde C. Bjørnland, sem er ein af þeim hagfræðingum sem sátu í umræddri nefnd sem skrifaði skýrsluna. Þar segir, með leyfi forseta:

„Fullyrðing efnahags- og fjármálaráðuneytisins um að helstu niðurstöður skýrslunnar hafi sýnt fram á „að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli“ sé því fyrst og fremst hugarfóstur ráðuneytisins en ekki skýrsluhöfunda.

Þótt krónunni fylgi sveiflur og töluverður kostnaður undirstrikar Bjørnland að Seðlabankinn hafi verið skilvirkur í aðgerðum sínum og að ekki hafi verið lagt mat á það hvort kostir evrunnar myndu vega upp á móti því að bankinn missi þau úrræði sem hann býr yfir undir sjálfstæðri peningastefnu. „Í upptalningu bentum við kannski á fleiri kostnaðarþætti en kosti núverandi fyrirkomulags, en við vigtum ekki hvort þessir kostnaðarliðir í heild vegi þyngra en ávinningurinn,“ segir hún.“

Það er ekki lítið mál fyrir lítið opið hagkerfi að hafa þurft í gegnum tíðina að takast á við náttúruhamfarir, sveiflur í sjávarútvegi, fjármálakreppur, heimsfaraldur og aðrar séríslenskar áskoranir og þess vegna er áhugavert að heyra hvað Hilde segir við kollega sína í Noregi og Norðmenn; hún mælir ekki með upptöku evru fyrir Norðmenn á þeim forsendum að Noregur sé auðlindadrifið hagkerfi, svipað og hér á Íslandi, og þess vegna sé mikilvægt að halda í sjálfstæða peningastefnu.

Það var líka athyglisvert að hlusta á Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra á ráðstefnu þar sem fjallað var um skýrsluna. Hann lagði áherslu á að leiðin að lægri vöxtum væri í grundvallaratriðum sú sama, hvort sem Ísland væri með krónu eða evru. Háir vextir væru ekki fyrst og fremst afleiðing gjaldmiðilsins sjálfs heldur þróunar í raunhagkerfinu. Það er auðvitað kjarni málsins. Það er freistandi að leita einfaldra lausna á erfiðum viðfangsefnum. Margir vilja trúa því að upptaka evru leysi vaxtavandann. Aðrir vilja halda því fram að krónan sé gallalaus. Hvorugt stenst skoðun. Vextir verða ekki varanlega lágir nema verðbólga sé lág og stöðug. Verðbólga verður ekki lág og stöðug nema ríkisfjármálin séu ábyrg, vinnumarkaður sé stöðugur og traust ríki á milli stjórnvalda, atvinnulífs og launafólks. Þetta eru sömu verkefnin, hvort sem gjaldmiðillinn heitir króna eða evra.

Fjallað er sérstaklega um Norðurlöndin í þessari skýrslu og, virðulegur forseti, þá langar mig að drepa niður í ágætisræðu sem hæstv. fjármálaráðherra hélt 8. desember árið 2022, þá varaþingmaður Viðreisnar. Hv. þingmaður, núverandi hæstv. ráðherra, sagði:

„Við getum ekki þar af leiðandi dregið þá ályktun að það sé endilega krónan sem er vandamálið. Ég gæti haldið hér langa ræðu um það að hún sé vandamálið að því leyti að hún stuðli ekki að agaðri hagstjórn á Íslandi en hún er í sjálfu sér ekki vandamálið. Það væri mögulegt, ég skal fyrstur manna viðurkenna það, að ná hér stöðugleika með krónunni en þá þyrfti agaðri hagstjórn …“

Virðulegur forseti. Ég spyr: Hefur hæstv. ráðherra gefist upp á því verkefni? Ef svo er þá erum við Sjálfstæðismenn tilbúnir að taka við og ná hér agaðri hagstjórn, ná niður vöxtum og verðbólgu (Forseti hringir.) því það er nákvæmlega sú vegferð sem hafin var í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar.