157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[15:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þá ágætu umræðu sem hér fór fram og sérstaklega hæstv. fjármálaráðherra fyrir að koma til hennar og flytja okkur skýrslu sína. Það er auðvitað eitt og annað sem er ástæða til að bregðast við í þeim umræðum sem hér hafa átt sér stað. Helst vil ég kannski í byrjun nefna það sem hefur verið nefnt í nokkrum ræðum, en það eru áhrif vinnumarkaðsmódelsins á það sem við okkur blasir. Það er auðvitað eitthvað sem á við hvort heldur sem við verðum með íslenska krónu til langrar framtíðar eða tökum upp annan gjaldmiðil. Það er hlutur sem við þurfum alveg örugglega að fara að ræða á næstunni með ítarlegri hætti í þinginu. Það er ástæða til að skjóta því að hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni að háir vextir einir og sér, nafnvextir, hjálpa ávöxtun lífeyrissjóða ekkert sérstaklega. Það eru raunvextirnir sem skipta máli en það er nú útúrdúr. Ræða hv. þm. Dags B. Eggertssonar var svo undarleg að það kallar eiginlega á sérstaka skýrsluumræðu að greina hana þannig að ég ætla ekki að verja þessari mínútu minni í það.

Ég vil bara hvetja hæstv. fjármálaráðherra til að nálgast umræðu um þessa skýrslu á þeim nótum sem mér þótti hann gera í inngangi sínum að skýrsluumræðunni í dag. Það var mun hófsamari og svona ballanseraðri nálgun heldur en mér þótti viðhöfð á fyrstu metrum umræðu um skýrsluna. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli gagnvart þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem er áætluð núna 29. ágúst að upplýsingar séu réttar, hóflega fram settar og af ákveðinni festu þannig að almenningur eigi raunverulegan möguleika á að glöggva sig á kostum og göllum þess sem við okkur blasir. Þar er auðvitað gjaldmiðlaspurningin eitt af lykilatriðunum. Staðreyndin er sú að hér á Íslandi hefur hagsæld aukist meira en í flestum, ef ekki öllum, þeim samfélögum sem við helst berum okkur saman við yfir langt tímabil (Forseti hringir.) og það er að hluta til krónunni að þakka þótt vissulega eigi hún sína galla en evran, guð minn góður, hún á nóg af göllum og Evrópusambandið, sem þarf að ganga inn í í millitíðinni, á enn meira af þeim. — En ég þakka fyrir umræðurnar.