157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

Niðurstöður skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra.

[15:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Frú forseti. Ég vil aftur þakka hv. þingmönnum fyrir ágæta umræðu og sérstaklega málshefjanda, hv. þm. Bergþóri Ólasyni, fyrir að kalla eftir henni. Það er auðvitað ljóst að það mál sem við ræðum hér í dag er flókið. Í umræðunni hefur verið vitnað til skýrslu Seðlabanka Íslands frá árinu 2012, sem er held ég einar 1.200 blaðsíður, og hefur nú raunar staðist tímans tönn ágætlega. Þar er því m.a. haldið fram að einhliða upptaka annars gjaldmiðils í eins nútímalegu hagkerfi og íslenska hagkerfið er sé útilokuð og það að nefna í því samhengi að ríkjum eins og Montenegro og Kósovó hafi tekist slík einhliða upptaka skipti litlu máli. Það sem skiptir hins vegar miklu máli er í sjálfu sér það sem kom fram í máli hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar; það hafa orðið miklar breytingar á íslenska hagkerfinu á þessum tíma. Hér hafa verið innleidd ýmis kerfi, m.a. í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, á undanförnum árum sem hafa gert það að verkum að við þurfum að taka endurmat á þessari spurningu og ég held að það sé raunverulega aðalatriðið. Hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson kom inn á nýlega skýrslu sem Lars Calmfors stýrði um mat á áhrifum upptöku evru í Svíþjóð. Niðurstaða hans er önnur en hún var 1994 vegna þess einfaldlega að það hafa orðið breytingar á hagkerfinu á þessum tíma. Þetta endurmat er því nauðsynlegt. Það hafa líka orðið fleiri breytingar eins og stóraukinn hreyfanleiki íslensks vinnuafls þannig að þegar hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson talar um að áhrifin á vinnumarkað séu bara atvinnuleysi þá er það alls ekki þannig. Hér er kominn stór hópur fólks sem vinnur á Íslandi en fer ef harðnar á dalnum eins og kom í ljós í Covid-áfallinu.

Mig langar aðeins að víkja að því sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir vitnaði í og langar í því samhengi að nefna að Norðurlöndin eru öll með sitthvort gjaldmiðlalíkanið en öll eru með sama vinnumarkaðslíkanið. (Forseti hringir.) Grunnurinn að aganum á Norðurlöndunum hefur verið vinnumarkaðslíkanið eða vinnumarkaðsmódelið og það er nauðsynlegt að við tökum það til endurskoðunar. (Forseti hringir.)

Allra síðast langar mig til að biðja hv. þingmenn að falla ekki í þá gryfju að hengja höfunda skýrslunnar. (Forseti hringir.) Skýrslan er faglega unnin. Hún fékk yfirferð hjá Seðlabankanum sem kom með athugasemdir og það gerði það að verkum að betra gagn varð til. (Forseti hringir.) Ég held að hún geti orðið grunnur að gagnlegri umræðu eins og hún hefur verið hér í dag.