ræðutími í umræðu um munnlega skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur. Við erum í þeirri stöðu, eitthvað sem hefur verið helsta vopn ESB-sinna í umræðunni, alla vega á síðustu vikum, að hér muni allt breytast og verða svo miklu betra. Hér auglýsa menn pítsur með afslætti eins og enginn sé morgundagurinn og að þetta muni allt gerast ef við verðum aðilar að evru. Við erum að tala um þetta eftir að við erum búin að taka umræðuna um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er mjög takmarkað. En í ofanálag þá liggur það fyrir af hálfu ríkisstjórnarinnar eða forystumanna ríkisstjórnarinnar, það er bara staðreynd, að menn eru búnir að rangtúlka niðurstöðurnar. Ég spyr, virðulegur forseti: Ætla menn að hafa þetta með þessum hætti? Ætla menn að láta þetta hanga með þessum hætti eða ætla menn að gera einhverja tilraun til þess að leiðrétta það sem margoft hefur verið tekið fram að er rangt (Forseti hringir.) þegar kemur að túlkun ríkisstjórnarinnar og hæstv. ráðherra og stjórnarliða á niðurstöðum skýrslunnar?