157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[15:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Snorri Másson) (M):

Virðulegur forseti. Við í mínum eins manns minni hluta í allsherjar- og menntamálanefnd höfum lagt fram frávísunartillögu gagnvart þessu frumvarpi, samið nefndarálit þar sem farið er yfir helstu sjónarmið. Í ræðu hér fyrr í þessari umræðu gerði ég grein fyrir því að sú frávísunartillaga hvílir einkum og sér í lagi á þeim áhyggjum sem við í minni hlutanum höfum af ádrætti í greinargerð frumvarpsins um að jafnvel þótt hér sé aðeins verið að innleiða þær gerðir úr verndarsamkomulagi Evrópusambandsins sem eru skuldbindandi gagnvart Íslandi er boðað að aðrar gerðir verndarsamkomulagsins, þær sem við höfum ekki skuldbindingar til að taka upp, verði eins og það er orðað, með leyfi forseta, „teknar til frekari skoðunar á síðari stigum með hliðsjón af þróun regluverksins, reynslu annarra Evrópuríkja af innleiðingu samkomulagsins og mati á hagsmunum Íslands.“ Þótt hér sé verið að innleiða pakka, AMMR-hlutann, Eurodac-hlutann og neyðarástandssjónarmiðin, sem eru skuldbindandi fyrir okkur, er boðað í greinargerðinni að annað verði skoðað og það er einkum sú athugasemd sem við teljum vera tilefni til að hvetja hv. allsherjar- og menntamálanefnd þegar málið kemur vonandi inn til nefndar á milli 2. og 3. umræðu til þess að kveða skýrar á um það í nefndaráliti meiri hlutans að í þessu felist ekki stefnumörkun.

Í nefndaráliti meiri hlutans segir, með leyfi forseta: „Meiri hlutinn telur brýnt að frumvarpið nái fram að ganga …“ Hér í nefndarálitinu segir:

„Þá undirstrikar meiri hlutinn að með frumvarpinu er einungis verið að innleiða þá hluta reglugerða Evrópusambandsins sem Ísland er skuldbundið af.“ — Þetta liggur fyrir. — „Sérstaklega má geta þess að þar undir fellur ekki innleiðing á ákvæðum IV. hluta AMMR-reglugerðarinnar um samstöðu ríkja og dreifingu ábyrgðar á umsóknum um alþjóðlega vernd.“

Hér er tekið fram að það sé verið að innleiða aðeins þá hluta en ekki útskýrt eða farið nánar út í sjónarmiðin í greinargerðinni um það með hvaða hætti og undir hvaða kringumstæðum, hvenær og við hvaða skilyrði aðrir þættir verða teknir til skoðunar. Í andsvörum hér lýsti hv. framsögumaður málsins því að hann sæi ekki fyrir sér að með þessu væri verið að gefa neitt til kynna um frekari aðlögun að þessu verndarsamkomulagi. Ég man ekki nákvæmlega hvert orðalagið var. En hv. þingmaður getur gert grein fyrir sinni afstöðu hér sjálfur. Þetta er í raun og veru meginþungi athugasemdarinnar, að ekki sé kveðið nánar á um það með afgerandi hætti. Við sem höfum áhyggjur af frekari aðlögun að þessu verndarsamkomulagi, aðlögun sem við erum ekki skuldbundin til, getum ekki fellt okkur við þessa lagasetningu þar sem boðuð er frekari aðlögun á óskýrum forsendum.

Ég tel fara betur á því að kveðið væri skýrar á um það í nefndaráliti, hvernig sem það væri orðað, að í samþykkt þessa frumvarps felist engin stefnumörkun um frekari aðlögun Íslands að verndarsamkomulagi Evrópusambandsins. Einhverjum kann að þykja þetta deila um keisarans skegg eða smámunasemi en því miður sýnir reynsla okkar það í gegnum aldirnar og alla vega áratugina síðustu að með því að ganga inn í margvísleg alþjóðleg samkomulög, eins og verið er að gera hér, er oft byrjað rólega, farið hægt, síðan eru menn byrjaðir og áður en þeir vita af eru þeir komnir í aðstæður sem eru óhagfelldar þeirra hagsmunum og þá er hvergi undankomuleið. Þannig að það er ábyrgð okkar sem þingmanna hér að hugsa málið til enda og virkilega ígrunda hvert einasta skref í þessa átt vandlega og þess vegna gerum við þessa kröfu eða ósk um að nefndaráliti meiri hlutans verði þannig breytt að það sé kveðið með afdráttarlausum hætti á um að hér sé ekki stefnan og hér sé ekki verið að samþykkja á Alþingi að núna hefjist frekara aðlögunarferli að verndarsamkomulagi Evrópusambandsins eins og gefið er til kynna í greinargerð frumvarpsins.

Á þessu hvílir frávísunartillaga um annað efni frumvarpsins. Töluverð umræða hefur farið fram og til sanns vegar má færa að innan þess ramma sem hér hefur verið settur þá liggur þinginu á að samþykkja þetta. Auðvitað mætti fara fram frekari umræða um það. Það er ískyggilega oft hér á Alþingi sem við erum að kljást við mál sem eru í raun og veru orðinn hlutur. Það er búið að taka ákvörðun um afgreiðslu málsins á einhverjum öðrum stað en vísað er til þess að við höfum einhvern samráðsrétt og einhverja aðkomu að. En við sem þingmenn fáum þetta inn á borð okkar sem orðinn hlut og okkur sagt: Ja, hér fer Schengen-rétturinn eða Dyflinnarreglugerðin forgörðum, þannig að það er eins gott fyrir ykkur að samþykkja þetta.

Ég þekki alveg tæknilegu ástæðurnar á bak við feril þessa máls, að hingað séum við komin og getum ekki annað samkvæmt þeirri sýn sem lagt er upp með í frumvarpinu. En það er engu að síður umhugsunarefni að það sé svona mikill fjöldi mála, m.a. grundvallarmála, sem kynntur er fyrir alþingismönnum sem orðinn hlutur sem við hnikum ekki til. Jafnvel þótt Ísland hafi á einhverjum öðrum stigum getað haft ákveðin áhrif á það hefur maður ekki þá tilfinningu að maður sjálfur hafi raunverulegan aðgang að þeim vettvangi í þessu tilfelli. En kannski er sú tilfinning á misskilningi byggð og þá játa ég fúslega að ég er bara einfaldlega áhugasamur um að Ísland beiti sér betur, fyrr og á fyrri stigum. — Að því sögðu lýk ég máli mínu.