útlendingar og lögreglulög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni, Snorra Mássyni, fyrir ræðuna og yfirferð á hans máli, áliti minni hlutans. Ég skil ekki greinargerð með frumvarpinu með sama hætti og þingmaðurinn, að það sé með einhverjum hætti stefnt að upptöku á öðrum köflum en við erum bundin til samkvæmt lögum. Það er auðvitað þannig, nákvæmlega eins og við erum hér stödd að taka upp í íslensk lög það sem okkur ber að gera, að það myndi þá ekki gerast með öðrum hætti heldur en að við myndum fá hér eitthvert frumvarp.
Ég skal alveg taka undir með hv. þingmanni að það er óheppilegt að frumvörp komi fram með svo skömmum fyrirvara sem hér varð. Það hefði verið heppilegt að geta rætt þetta betur. Hins vegar er það þannig að þegar við höfum tekið ákvörðun, hvernig sem okkur líkar síðan sú ákvörðun sem tekin var í kringum aldamót, um að vera í Schengen-samstarfinu þá er Dyflinnarreglugerðin grundvallaratriði í því að ákveða hver beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Og nú þegar hluti af verndarsamkomulaginu er að taka yfir Dyflinnarreglugerðina þá skiptir verulegu máli að við tökum hana upp. Ég held að við ættum bara að halda vöku okkar gagnvart því að við séum ekki að fara að taka upp neina kafla verndarsamkomulagsins sem okkur ber ekki að gera. Þannig að ef við myndum verða við því að vísa þessu frá þá erum við náttúrlega komin svolítið í stöðu þar sem við vitum ekki alveg hver niðurstaðan verður. Jafnvel þó að ég geti alveg tekið undir gagnrýnina þá hræðist ég það ef Dyflinnarreglugerðin fellur úr gildi og við höfum ekki innleitt AMMR-reglugerðina. Ég spyr hv. þingmann hvort hann hræðist það ekki sjálfur.