157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[15:21]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Snorri Másson) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir spurninguna sem er alveg eðlileg í þessu máli. Ég tók mjög skýrt fram hér í þingsal fyrir nokkrum dögum þegar þetta mál var til umræðu að mér dytti síst í hug með þeirri frávísunartillögu sem hér er lögð fram að leggja það til að menn fari af stað með óábyrgum hætti og valdi því að við lendum í einhvers konar lagalegu tómarúmi gagnvart þessum breytingum. Ég myndi ekki styðja slíkan framgang málsins og úr því að menn hafa rætt raunverulegt svigrúm til þess að gera raunverulegar breytingar ef til raunverulegrar frávísunartillögu kæmi þá get ég vel gert mér grein fyrir því að það sé miklu frekar tiltölulega hentug leið að nota nefndarálitið og nota vinnu nefndarinnar til að hnykkja á þeim atriðum sem alla vega ég geri athugasemd við. Og úr því að hv. þingmaður talar um að hann skilji ekki frumvarpið þannig að í því felist ádráttur um frekari innleiðingu málsins eða frekari innleiðingu verndarsamkomulagsins þá fagna ég því að heyra það. En ég held einmitt að það færi vel á því að hnykkja á því í nefndaráliti vegna þess að þrátt fyrir allt stendur í frumvarpinu, sem verður samþykkt með tilheyrandi greinargerð, að aðrar gerðir verndarsamkomulagsins séu ekki skuldbindandi fyrir Ísland og verði ekki innleiddar með frumvarpi þessu. Það kemur skýrt fram. En síðan er boðað í greinargerð frumvarpsins sem við værum að samþykkja ef við myndum samþykkja þetta frumvarp að þær verði teknar til frekari skoðunar á síðari stigum með hliðsjón af þróun regluverksins, reynslu annarra Evrópuríkja og mati á hagsmunum Íslands. Ég lýsti því í meirihlutaáliti, upphaflegu minnihlutaáliti, að þegar við erum að samþykkja svona frumvarp undir þeim kringumstæðum að hér sé við lýði ríkisstjórn sem aðhyllist aðlögun að Evrópusambandinu á fleiri stigum þá verð ég að mínu mati, bara út frá minni ábyrgð hér, að gæta þess að samþykkja ekki slíkt í frumvarpstexta, að farið verði inn í slíka vegferð með samþykki mínu ef ég er hreinlega mótfallinn frekari aðlögun að verndarsamkomulaginu. Hér er boðað á vissan hátt að hún verði tekin til skoðunar og í staðinn væri hægt að hafa það skýrara í nefndarálitinu að með samþykkt þessa frumvarps felist ekki ákveðin stefnumörkun í þessa átt.