útlendingar og lögreglulög.
Virðulegur forseti. Eins og ég hef sagt er ég einnig sannarlega að vinna af heilum hug að hagsmunum Íslands og þess vegna hef ég sagt um frávísunartillöguna sem er í minnihlutaáliti nefndarinnar að undir þeim kringumstæðum að meiri hluti nefndarinnar sé fús að ræða þetta betur á milli 2. og 3. umræðu þá getum við sannarlega komist að niðurstöðu þar sem sú frávísunartillaga heyri sögunni til og við getum unnið málið áfram með öðrum hætti. Ég vonast til að við getum átt slíkt samstarf í nefndinni núna á milli 2. og 3. umræðu og rætt þá betur um álit meiri hluta nefndarinnar og hvernig hægt væri að hnykkja á þessum sjónarmiðum þar.
Hitt er að það er sannarlega áhugavert að heyra að hv. þingmanni þyki að þessi fjórði hluti verndarsamkomulagsins henti ekki hagsmunum Íslands því að sá hluti er augljóslega eitthvað sem Ísland tæki upp færi það inn í Evrópusambandið. Ég held að innan Evrópusambandsins séu gerðir þessa pakka verndarsamkomulags ekki valkvæðar þannig að það verður áhugaverð umræða þegar nær dregur. Hitt er auðvitað löng saga Evrópusambandsins aftur í því samhengi að yfirstjórn og framkvæmdastjóri Evrópusambandsins og dómstólar þess hafa ekki alltaf farið mjúkum höndum um þá sem synda gegn straumnum, ef svo má segja, í innflytjendamálum eða nálgun annarra ríkja Evrópusambandsins. Þar er töluverð krafa um mikla miðstýringu og það er m.a. ein helsta ástæðan fyrir því að maður bregst við af fullum þunga þegar hér hefst ákveðin innleiðing á verndarsamkomulaginu þegar maður hefur séð aðrar þjóðir sannarlega missa spón úr aski sínum hvað varðar yfirráð þeirra á innflytjendamálum í sínu landi.