157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[15:27]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það stóð ekki til hjá mér að lengja þessa umræðu frekar sem ég veit að er í rauninni lokið. Það voru bara orð hv. þm. Gríms Grímssonar í andsvörum sem urðu þess valdandi að mig langaði gjarnan að fara í andsvar við hv. þingmann og það gengur ekki. Þess vegna langaði mig að taka til máls. Mig langar að byrja á að segja að ég styð þetta mál og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins gerir það. Ég sé ýmsa kosti við það að vera í Schengen. Það kunna að vera einhverjir gallar. Hér erum við að taka á okkur einhverja ábyrgð, eins og ég skil það, en við njótum þá líka kostanna við að vera í Schengen. En það breytir ekki þeirri staðreynd að útlendingareglugerð Evrópusambandsins er mjög umdeild og þess vegna stakk það mig svolítið það sem hv. þingmaður sagði hér áðan, að við myndum ávallt gæta hagsmuna Íslands og það gæti verið svo að það væru ákveðnir kaflar sem myndu ekki þjóna hagsmunum Íslands. Og vegna þess að við vorum að ræða hér áðan gjaldmiðilinn og höfum verið að ræða Evrópusambandið þá, ef við erum í Evrópusambandinu, höfum við ekkert val um það. Það er auðvitað líka mjög mikilvægt að það liggi skýrt fyrir. En núna erum við ekki innan Evrópusambandsins. Við erum með Schengen og við getum tekið upp ákveðna kafla sem falla þar undir.

Ég held að það sé ekkert hættulegt í þessu máli og fyrir mitt leyti stend ég ekki gegn því. Ég tel enga ástæðu til að vísa því frá en það er ástæða til að vekja athygli á þeirri staðreynd að ef við erum innan Evrópusambandsins, sem margir í þessum sal vilja, þá er valið ekki það sama.