157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ræðu. Ég vil ekki að taka djúpt í árinni en það er auðvitað þannig að mér mislíkar það töluvert ef fólk hefur þær hugmyndir að ég haldi ekki hagsmuni Íslands í heiðri. Það er auðvitað galin niðurstaða svo ég taki ekki dýpra í árinni. Það er auðvitað þannig að á einhverjum tímapunkti erum við ekki í Evrópusambandinu og hugsanlega á einhverjum öðrum tímapunkti í Evrópusambandinu. Þá gilda bara allt önnur lögmál. Það blasir auðvitað við að ef við förum í samningaviðræður við Evrópusambandið þá kynni vel að vera að það kæmi upp eitthvað sem við þyrftum að taka afstöðu til, mér finnst það bara blasa við. Hagsmunirnir sem ég nefni snúa ekkert endilega að því hvort við tökum hér við fólki eða ekki heldur snúa þeir að því hvað okkur ber að gera. Ég vil bara benda á það að við höfum tekið við töluvert miklum fjölda af hælisleitendum, bæði frá Úkraínu, Venesúela og öðrum löndum þannig að ég hugsa að við séum bara að taka við töluvert stóru hlutfalli af hælisleitendum hingað til lands. Lengra ætla ég ekki hafa þetta og er svo sem ekki spurning í þessu.