útlendingar og lögreglulög.
Virðulegur forseti. Ég hygg að það sé alveg á hreinu að í ræðu minni var ég engan veginn að halda því fram að hv. þm. Grímur Grímsson bæri ekki hagsmuni Íslands fyrir brjósti. Ég taldi hann hafa sagt hér áðan að það kynnu að vera einhverjir kaflar í verndarsamkomulagi Evrópusambandsins sem kynnu ekki að þjóna hagsmunum Íslands og ég var einfaldlega að benda á það að ef við erum innan Evrópusambandsins þá hefðum við að öllum líkindum ekkert val um það. Þannig virkar sambandið. Það var það eina sem ég var að benda á. Ég var ekki að ásaka hv. þingmann um að bera hag Íslands ekki fyrir brjósti og það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að á einhverjum tímapunkti, og ég vona ævinlega, erum við utan Evrópusambandsins en það kynni að fara svo að á einhverjum tímapunkti værum við innan Evrópusambandsins og ég veit að hv. þingmaður og hans flokkur hefur frekar viljað fara þá leið. Það sem ég var einfaldlega að benda á var að þá væri ekki val um að velja úr pakkanum hvað það varðar, enda tók mjög langan tíma hjá Evrópusambandinu að koma sér saman um þessar reglugerðir og Evrópusambandið snýst einmitt um þetta, að deila byrðunum og það er það sem þessi verndarpakki hefur fjallað um. Þannig að það var einföld ábending um að svo væri.