157. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[15:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Þetta mál snýst um það, eins og ég hef rakið í fyrri ræðum, að Ísland gerist aðili að hælisleitendapakka Evrópusambandsins svokölluðum, gríðarlega stóru og umdeildu máli í Evrópu þar sem jafnvel stöku ESB-ríki hafa sagst munu aldrei fallast á að gerast þarna aðilar. Þá er okkur sagt okkur til hughreystingar, eins og jafnan er þegar verið er að hefja innleiðingu á einhverjum af þessum Evrópusambandspökkum, eins og í loftslagsmálunum og ýmsu öðru, að við séum bara að taka upp hluta af þessu svo við þurfum ekki að óttast hitt. Og hvers vegna þurfum við þó að taka upp þann hluta sem hér er lagt til? Jú, okkur er sagt að það sé vegna fyrri skuldbindinga okkar og vísað í Schengen-samkomulagið og raunar þann þátt Schengen-samkomulagsins sem er frá 2013 og varðar Dyflinnarreglugerðina. En ef það stendur til einhliða af hálfu félaga okkar í þessu samkomulagi að hverfa frá því þá hljótum við sem væntanlega fullgildir aðilar — maður hlýtur að ímynda sér það — að þessu samkomulagi að geta haft eitthvað um það að segja hvað tekur við. En nei, í staðinn fáum við bara hérna frá þessari ESB-sinnuðu ríkisstjórn tillögu um að gera þetta bara nákvæmlega eins og Evrópusambandið vill hafa það og hefja aðlögunina að þessu.

En um leið, þrátt fyrir að aðlögun að þessum fyrsta hluta byggist á fyrri skuldbindingum, eigum við ekki að hafa neinar áhyggjur af því að það geti leitt til seinni skuldbindinga. Svo þegar þar að kemur, þegar næsta innleiðing kemur, þegar framhaldið kemur, hvað telja hv. þingmenn að verði þá sagt? Þá verður sagt: Bíddu nú við, Alþingi er skuldbundið, Ísland er skuldbundið til að innleiða þetta af því að þið innleidduð fyrsta hlutann. Og ekki nóg með það, heldur var getið sérstaklega um það í greinargerð málsins að í framhaldinu yrði framhald innleiðingarinnar skoðað, með hvaða hætti og byggt á reynslu og allt þetta almenna tal sem fylgir alltaf.

Svona er þetta alltaf þegar innleiðingar eru teknar í skrefum og þær eru alltaf teknar í skrefum. Þess vegna er ekki að ástæðulausu að hv. þm. Snorri Másson nefndi hérna áðan að ef þingið á að geta afgreitt þetta mál með svona sæmilegri samvisku — því að ekki verður úr þessu byrjað að gæta hagsmuna Íslands og ræða okkar innlegg í breytt fyrirkomulag — ef menn ætla að innleiða þetta hérna núna og ef þingið á að geta, ég segi ekki rólegt en fengið einhverja smá ró með þessa afgreiðslu, verður það að koma skýrt fram í þessu máli á einn eða annan hátt að því fylgi engin skuldbinding að mati Alþingis til að innleiða meira af hælisleitendapakkanum og jafnframt verði endursendingar áfram heimilar með svipuðum hætti og í Dyflinnarreglugerðinni. En það verður að koma fram af hálfu þingsins nú, nema það sé bara verið að reyna að blekkja okkur og einhverjir hv. þingmenn að taka þátt í tilraunum kerfisins til þess að þessi innleiðing á þessum hluta hælisleitendapakkans leiði ekki á nokkurn einasta hátt til frekari skuldbindingar af hálfu Íslands.