samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040. Þetta er auðvitað merkilegt mál fyrir margra hluta sakir en umræðan í þingsal verður svolítið sundurslitin sökum þess að hér er í rauninni einn liður af þremur málum sem eru samhangandi og tengjast mjög, þ.e. samgönguáætlunin sjálf sem hér er til umræðu, fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra til laga um innviðafélag. Það eru sem sagt þessi þrjú mál sem tengjast með þessum hætti því að auðvitað er ekki nóg að lofa öllu fögru heldur þarf að fjármagna framkvæmdirnar og ég vil í upphafi einmitt fjalla um þann þátt málsins. Það liggur fyrir og hefur verið fjallað um það að hérna þurfi að ráðast í samgönguframkvæmdir upp á 200 milljarða, bara til að ná einhvers konar grunnstöðu, einhverjum grunnpunkti í því sem sumir kalla innviðaskuld. Það er öllum ljóst að það þarf að ráðast í nokkurt átak hvað þetta varðar og hér er lagt upp með að árlega fari rúmlega 70 milljarðar í samgöngumál, sem eru eingöngu hluti af þeim tekjum sem falla í ríkissjóð tengdum samgöngum. Þá er á næsta ári stefnt að og útlit fyrir að tekjur af samgöngum, ökutækjum, kílómetragjaldi, vörugjöldum, eða hvað fólk vill kalla þetta allt saman, verði á bilinu 90–100 milljónir en hér erum við sem sagt að fjalla um að verja 70 milljörðum á ári í framkvæmdir. Það er lykilatriði að öllum sé ljóst strax í upphafi að tekjurnar eru hærri en útgjöldin og mætti jafnvel segja sem svo að umferðin sé að borga með sér. Það setur þetta í samhengi, svolítið undarlegt samhengi jafnvel, þegar ljóst er að tekjurnar af umferðinni eru hærri en útgjöldin en samt er þessi ríkisstjórn í þeirri vegferð að auka álögur og leggja á enn frekari gjöld. Þetta er kannski fyrsti bakgrunnur málsins.
Ég vil líka í þessu sambandi geta þess að það er svolítið holur hljómur í yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar þegar þetta er staðan, að tekjurnar eru hærri en útgjöldin af umferðinni, en svo er alltaf verið að réttlæta nýja skatta og nýjar álögur með fallegum fyrirheitum um að ráðast í meiri háttar samgöngubætur víðs vegar um landið. Það er gulrótin sem er veifað fyrir framan skattgreiðendur; að jú, það þurfi að leggja á veiðigjöld eða kílómetragjöld eða vörugjöld eða auka álögur á ferðaþjónustuna, eins og einhvern tímann voru áform um, og það réttlætt með því að þú fáir göng. En svo ef maður skoðar áætlunina er það alveg rétt, eins og kom fram í máli hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar, að samgönguáætlunin er mjög afturhlaðin, eins og hann orðaði það og mér fannst ágæt lýsing á þessu, stóru bitarnir koma seinna, ef ég orða það sem svo.
Annað sem ég vil geta um og við áttum í samskiptum um í þingsal, ég og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, er mikilvægi þess að samgönguáætlun sem á að gilda til langs tíma, allt til ársins 2040, sé trúverðug. Hér er lagt upp með áætlun sem nær yfir fleiri kjörtímabil og til þess að það væri eitthvert vit í henni hefði verið óskandi að það væri breið samstaða á þinginu um efni samgönguáætlunar. Fólkið í landinu og fyrirtækin í landinu þurfa jafnvel að reiða sig á og eru kannski að gera áætlanir um uppbyggingu og annað á grundvelli yfirlýsinga íslenska ríkisins um vegabætur hér og þar og til þess að þetta sé allt saman trúverðugt þarf það auðvitað að halda. Það er eðlilegt að álykta sem svo að líkur á því aukist verulega ef það er samstaða hér í þinginu en mér heyrist því miður þegar ég fylgist með umræðunni, og ég fylgdist líka með því hvernig samgönguáætlunin var kynnt, sem var áfall fyrir Austfirðinga, að þessi ríkisstjórn, sem kallar sig oft verkstjórn, sé reiðubúin til að kasta eldri áætlun og fara af stað með sína eigin, sem er þá þessi hér. Þetta er að mínu viti óheppilegt en það kemur svo sem í ljós hvernig okkur mun takast til hér í þingsal og að sama skapi í nefndarstarfinu.
Þá ætla ég að fara yfir efni málsins og vil í upphafi geta þess að samgöngumál, bættar samgöngur, eru lífsgæðamál. Þetta er atvinnumál. Ég kem hingað upp sem þingmaður Reykvíkinga en auðvitað er þetta hagsmunamál okkar allra. Mér finnst líka mikilvægt að geta þess að ég er sjálfur þeirrar skoðunar að samgöngumál í Reykjavík hafi oft verið, og virðast hafa verið það undanfarna áratugi, frekar aftarlega á merinni. Það má svo sem líka sjá af samgöngusáttmálanum sem ég mun víkja aðeins betur að síðar. En ég tek undir með umsagnaraðilum sem hafa bent á að það sé mikilvægt að forgangsraða arðbærum verkefnum eða verkefnum sem standa undir sér, sem eru auðvitað stærstu samgönguæðarnar. Ég vil nefna í því sambandi að samgöngubætur í Reykjavík eða til og frá höfuðborginni og á höfuðborgarsvæðinu eru líka hagsmunamál fyrir fólk á landsbyggðinni vegna þess að það styttir ferðatímann og byggðarlög á landsbyggðinni færast í raun og veru nær, alla vega hvað varðar tíma. Það skiptir máli. Það hefur verið samgönguvandi í Reykjavíkurborg og á höfuðborgarsvæðinu til lengri tíma og það er flókið mál að leysa hann. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að það skipti máli að byggja upp valfrelsi og sveigjanleika. Öflugar almenningssamgöngur þurfa að vera fyrir hendi og góðir innviðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Auðvitað skiptir það mjög miklu máli. Núna er stóra málið sem varðar okkur Reykvíkinga og er hér undir náttúrlega Sundabrautin. Hugmyndir um hana hafa verið uppi í áratugi og það er yfirgnæfandi stuðningur við Sundabrautina meðal kjósenda. Framkvæmdin nýtur bæði mikils stuðnings og er einmitt þetta sem ég nefndi, þjóðhagslega arðbær. Félagslegur ábati, menn eru mikið búnir að vera að ræða ábata hérna undir fyrri dagskrárlið, er mjög mikill af Sundabrautinni sjálfri og það er því óheppilegt hvað hún hefur tafist.
Ég legg mikla áherslu á að þetta gerist sem fyrst og þá komum við akkúrat að þessu sem ég nefndi hér í upphafi varðandi tekjur og gjöld. Það er þannig að sú framkvæmd er, þrátt fyrir yfirlýsingar ráðherra, ófjármögnuð og það liggur ekkert fyrir hvernig ríkisstjórnin hyggst fjármagna þessar framkvæmdir sem hún er að ráðast í. Ég átti orðaskipti við hæstv. fjármálaráðherra þegar hann mælti fyrir frumvarpi sínu til laga um innviðafélagið og mér fannst sláandi hvernig hæstv. ráðherra talaði í raun og veru út og suður um efnið og þvert ofan í yfirlýsingar hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem hafði slegið því fram með nokkuð groddaralegum hætti á samfélagsmiðlum að það kæmi ekki til greina að leggja veggjöld á t.d. Reykjanesbrautina eða Suðurlandsveg. Í frumvarpinu um innviðafélagið var sú hugmynd hins vegar reifuð. Þarna er bara gat í öllum áætlunum ríkisstjórnarinnar. Það er bara ekki nóg að vera með plan, áformin þurfa að ganga upp og svo er ekki í þessu máli. Mér fannst það sláandi, bara þannig að ég segi það og af því að það liggur fyrir að það styttist í umræður hérna um þetta innviðafélag og allt er þetta nátengt, sem ég las í nefndaráliti minni hluta fjárlaganefndar með frávísunartillögu á þessu innviðafélagi. Það segir hérna, með leyfi forseta: „ Innan nefndarinnar fór engin umræða fram um frumvarpið eða efni þess fyrr en málið var afgreitt með skyndi til 2. umræðu.“
Svona vinnubrögð eru fyrir neðan allar hellur, ekki síst þegar yfirlýsingar ráðherranna hafa verið, eins og ég segi, út og suður. Það er augljóst af frumvarpinu um innviðafélagið að stjórnvöld hafa upplýst að þau verkefni sem þau vilja að félagið skoði eða taki til framkvæmda eru einmitt Sundabraut, Fljótagöng og fjármögnun Ölfusárbrúar, sem er vel komin, og kostnaðurinn af þessu samanlagt er áætlaður 190 milljarðar kr. Svo segir þarna:
„Til að fjárhagsleg skilyrði haldi þyrfti ríkissjóður að leggja 75 milljarða kr. framlög til félagsins […] Til að mæta þeim kostnaði var skoðað að afhenda félaginu Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót en þar er nú þegar verið að innheimta eða stendur til að innheimta veggjöld.“
Síðan koma hugmyndirnar, þ.e. að hefja aftur gjaldtöku í Hvalfjarðargöngunum eða, eins og þeir segja hérna, að skoða annars konar veggjöld. Það segir í frumvarpi ráðherrans, með leyfi forseta:
„Mögulegt er að skoða fleiri þegar byggð mannvirki í þessu samhengi, til að mynda Reykjanesbraut og Suðurlandsveg, en með slíkum aðgerðum væri innheimta veggjalda á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu sem í fælist ákveðin sanngirni …“
Þetta er sem sagt texti frumvarpsins sjálfs en svo mætir hæstv. ráðherra hér og mælir fyrir málinu og vill ekki kannast við þetta. Hann hélt því raunar fram að gjaldtakan ætti að fara til að mynda í tvöföldun, eins og að það ætti að hefja gjaldtöku í Hvalfjarðargöngunum til að fjármagna tvöföldun þeirra. En þá vantar alla þessa milljarða sem áttu að fara í Sundabrautina eða Fljótagöngin eða Ölfusárbrú. Þarna er hæstv. ráðherra, fyrrverandi prófessor, að falla á prófinu, þannig að það sé orðað alveg skýrt. Ég fæ heldur ekki skilið hvers vegna og hvernig getur staðið á því að málið hafi ekki verið rætt í fjárlaganefnd, hafi ekki komið til umræðu. Þetta er þessi skammsýni sem mér finnst því miður oft vera hér á þessum vinnustað vegna þess að okkur er það öllum ljóst að ef nefndastörfin misheppnast þá lengist umræðan bara í þingsal. Standi vilji meiri hlutans til að afgreiða sín mál á auðvitað að vanda til verka í nefndastarfinu sjálfu, þannig að umræðan hér í þingsal geti verið vitsmunaleg. En þetta er hins vegar uppleggið. Ég sit ekki í fjárlaganefnd en ég hef reynt að fylgjast með málinu, umræðum og umsögnum og ég er enn engu nær um það hvernig ríkisstjórnin ætlar í raun og veru að brúa þetta bil. Vonandi upplýsist það í umræðu um innviðafélagið.
Ég vil líka nefna að það er óheppilegt að samgönguáætlun sé tekin á dagskrá og umræða um hana hér á þingi áður en umræður um innviðafélagið hefjast eða eru kláraðar, því að þetta hangir allt saman. Það er kannski að einhverju leyti lýsandi fyrir viðhorf þessarar ríkisstjórnar að hún hugsar fyrst um að eyða peningunum og svo ætlar hún að finna út úr því hvernig í ósköpunum hún ætlar að borga fyrir það. Við vitum því miður svarið, það er oftast með auknum álögum eða hækkun skatta.
Ég er búinn að fara um víðan völl í þessu máli en vil ítreka það sem ég hef sagt að við sem samfélag í stóru landi og auðvitað einhverju fámenni eigum að hafa metnað til að byggja upp öflugt samgöngukerfi. Þetta hangir allt saman og mér finnst skipta máli að við þingmennirnir reynum að vinna þetta saman þannig að úr verði gott verk, góð samgönguáætlun sem getur þá staðið tímans tönn.
Þá hef ég farið yfir þessi helstu sjónarmið og tíminn er líka að klárast. Ég hlakka til frekari umræðna og ítreka það sem ég hef áður nefnt hér í lokin að það skiptir öllu máli að áætlunin sé trúverðug því annars er hún ekki til neins.