samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir prýðisgott innlegg eða fína ræðu. Eins og hann sagði sjálfur þá fór hann yfir víðan völl. Hann ræddi svona, ég held að hann hafi notað orðið sundurleit eða sundurliðuð umræða. Var það ekki orðalagið? (SÖH: Jú, jú.) Sundurlaus umræða. Það er þrennt sem tengist, þ.e. fjármálaáætlunin, samgönguáætlunin og þetta innviðafélag sem er óstofnað og órætt. Hann nefndi líka að það virðist vera, ég vil segja akkillesarhæll ríkjandi valdhafa, fyrst að eyða peningunum og síðan að finna leið til þess að afla þeirra. Mér fannst gott hvernig hann orðaði það; fyrst að eyða peningunum og svo að finna leið til að afla þeirra. En hann notaði ekki orðið akkillesarhæll. Ég bætti því við.
Hann kom aðeins inn á samgöngusáttmálann og almenningssamgöngur og minntist á að þessi áætlun væri áfall fyrir Austfirðinga. Ég tek undir það. Við vitum öll hvers vegna það er. Það er erfitt að búa við það að ekki sé hægt að treysta áætlunum sem þegar hafa verið samþykktar, eins og t.d. varðandi Fjarðarheiðargöng, þó að maður skilji líka ríka þörf fyrir Fljótagöngin sem eru nú komin í efsta sætið.
En mig langaði að spyrja þingmanninn varðandi samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem hann kom aðeins inn á, með tilliti til þess að það þarf að sýna ráðdeild og fara hagkvæmustu leiðir sem hægt er að fara o.s.frv. Nú liggur fyrir og hefur verið sýnt fram á að það er hægt að betrumbæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu án þess að fara í þessi gríðarlegu fjárútlát sem borgarlínan, eins og hún er teiknuð upp núna, krefst. Nú er Sjálfstæðisflokkurinn kominn í meirihlutasamstarf í borginni. Tekur þingmaðurinn undir þann málflutning sem Miðflokkurinn hefur staðið fyrir lengi, að endurskoða verulega þessi borgarlínuáform og fara hagkvæmari leiðir til þess að laga þessar almenningssamgöngur hér á höfuðborgarsvæðinu? Það hefur verið sýnt fram á að það er hægt að gera þetta með einum þriðja af þeim kostnaði sem áætlaður er í borgarlínuna. Finnst honum ekki að okkur beri skylda til að fara hagkvæmari leiðir þegar slíkt er í boði?