samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er gott að við ræðum samgöngusáttmálann og borgarlínuna. Þingmaður spyr mig hvort ég sé sama sinnis og Miðflokkurinn, að nauðsynlegt sé að endurskoða borgarlínuna. Svarið við þeirri spurningu er í grunninn: Já. Verkefnið hefur náttúrlega stækkað á undanförnum árum og áratugum. Ég er þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt, og ég segi í rauninni bráðnauðsynlegt, að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlínan í einhverri slíkri mynd er liður í því. Sjálfur held ég að það sé mikilvægast að fara í þessa austur–vestur æð, það er svo augljós ábati af því. En það þarf að fara vel yfir þetta allt saman. Núna er kominn nýr meiri hluti til valda í ráðhúsinu og mér heyrist nú frekar að það verði farið yfir öll þessi áform með gagnrýnum hætti.
Ég vil nefnilega nefna það í þessu sambandi að við verðum að forgangsraða verkefnum. Þá er ég bara að tala um samgönguáætlunina í heild. Það er sem sagt að meta og fara strax í þau verkefni sem skila mestum þjóðhagslegum ávinningi. Það er alveg svolítið áhugavert, ég sit ekki í samgöngunefnd en ég er búinn að reyna að glöggva mig á þessu og maður veltir fyrir sér hvar kostnaðar- og ábatagreiningar séu af þessum valkostum og framkvæmdaliðum sem er verið að ræða. Það hefði alla vega verið gagnlegt fyrir mig þegar ég hef verið að lesa mig í gegnum málið að það væri einhvern veginn aðgengilegt. Ég treysti því og það hlýtur að vera að slíkar greiningar hafi verið framkvæmdar.